fasteignasölur.is
Kambasel 69
Opið hús 8. nóv. kl. 13:00–13:30
1 af 32

Um eignina

Mikið endurnýjuð og falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð (gengið upp einn stiga)  auk sérmerkt bílastæðis í litlu fjölbýlshúsi við Kambasel 69 í Reykjavík. Eldhúsinnrétting og baðherbergi hefur verið endurnýjað. Sérþvottahús er innan íbúðarinnar. Mjög snyrtileg sameign. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 66,1 fm. og þar af er geymsla íbúðar 4,9fm. 

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. 
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með stórum gluggum og parketi á gólfi.  Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Eldhús með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð, gufugleypir, gott borðpláss og parket á gólfi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi með flísum á gólfi. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.  
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á veggjum og gólfi. 
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins. 
Sérnerkt bílastæði íbúðarinnar á bílaplani.
Lóðin er fullfrágengin og er skemmtilegt leiksvlði fyrir aftan blokkina. 

Eigni hefur verið mikið endurnýjuð: 
- 2026 nýr gluggi í stofu og svefnherbergi 
- 2025 í lok árs var baðherbergi og eldhús allt endurnýjað
- 2025 nýtt parket og gólflistar
- 2025 nýjar flísar inn í þvottahúsi, baði og forstofu 
- 2023 sameign máluð og ný teppi 
- 2022 nýr dyrasími
- 2022 nýr gluggi í eldhúsi
- 2023 sameign máluð og ný teppi 

Mjög falleg og mikið endurnýjuð íbúð og vel staðsettt þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is eða Viktoría Larsen í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kambasel 69

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð66,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
59.900.000 kr.906 þ./m²
Byggingarár1980InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2057082Fasteignamat53.550.000 kr.Brunabótamat34.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑