fasteignasölur.is
Grettisgata 74
Opið hús 7. nóv. kl. 13:30–14:00
1 af 22

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Virkilega falleg og mikið endurnýjaða 3 ja herbergja íbúð á 1. hæð í sjarmerandi steinsteyptu fjórbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur.
Hér mætast klassískur byggingarstíll, upprunalegur karakter og nútímalegar endurbætur í einstakri heild.
Ath að þær myndir sem eru með húsgögn eru gerðar af gervigreind til að sýna rýmin betur.


* Fallegir upprunalegir loft listar og aukin lofthæð.
* Nýlega endurnýjuð íbúð – Nýmáluð, ný gólfefni og fallegt nýtt eldhús.
* Fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður sunnan við húsið

* Eftirsótt staðsetning – Í hjarta miðborgarinnar, með verslanir, kaffihús og alla helstu þjónustu í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir: Inga Reynis í síma 820-1903 eða á inga@palssonfasteigna.is 
Eignin er skráð samkvæmt HMS 72,6 fm og eru þeir alllir innan íbúðarinnar.


Íbúðin er björt og hlýleg með um 2,70 m lofthæð, glæsilegum upprunalegum loft listum, fallegum hurðum og stórum gluggum sem hleypa náttúrulegri birtu inn í rýmin. 
Húsið var byggt árið 1931 eftir teikningum arkitektsins Pjeturs Ingimundarsonar.

Nánari lýsing
Forstofa og gangur er með parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og einstaklega björt stofa þar sem mikil lofthæð, fallegir upprunalegir loftlistar og parket á gólfi.
Eldhús er með nýrri og fallegri IKEA-eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborði og uppþvottavél sem fylgir með. 

Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart svefnherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi er bjart og gott herbergi með sérinngangi fram á stigapall, sem býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika.
Baðherbergi er flísalagt baðherbergi með sturtu, upp hengdu salerni og handlaug.
Geymslur er innan íbúðar.
Þvottahús er sameiginlegt þvottahús er í kjallara og er sértengill fyrir hverja íbúð.
Garður er fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður sunnan við húsið.

Endurbætur og viðhald
Íbúðin er öll nýmáluð.
Ný gólfefni hafa verið lögð um alla íbúðina.
Ný og glæsileg eldhúsinnrétting ásamt nýjum eldhústækjum.

Innra skipulagi hefur verið breytt með áherslu á betri nýtingu á rýminu.
Stigagangur var endurnýjaður árið 2019, þegar skipt var um teppi og veggir, loft, listar og hurðir máluð.

Staðsetningin er afar eftirsótt, í hjarta Reykjavíkur, þar sem fjölbreytt mannlíf, menning og þjónusta eru við höndina. Stutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, Sundhöll Reykjavíkur, skóla á öllum skólastigum og aðra helstu þjónustu. Bílageymslan Stjörnuport er í bakgarðinum handan götunnar og er mánaðargjald fyrir íbúa kr. 11.400.

Grettisgata 74

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð72,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.963 þ./m²
Byggingarár1931InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2008268Fasteignamat65.550.000 kr.Brunabótamat39.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑