fasteignasölur.is
Laugarnesvegur 58
Opið hús 8. nóv. kl. 13:30–14:00
1 af 30

Um eignina

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg 128,4 fm. þriggja herbergja hæð í þríbýli með sérinngangi og bílskúr á einum besta stað í Laugardalnum.  Stór og gróinn sameiginlegur garður.   Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi.  Þvottahús er staðsett í sameign.  Bílskúr og geymsla íbúðar á lóð og sér bílastæði fyrir framan.  Íbúðarými er skráð 79,1 fm., bílskúr 37,0 fm. og geymsla í bílskúr 12,3 fm. Samtals birt stærð eignarinnar 128,4 fm.

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á undanförnum árum, m.a. endurnýjun á þaki, gluggum og gleri, skólplögnum, raflögnum og rafmagnstöflu. Á þessu ári verður stigagangur og þvottahús einnig endurnýjað samkvæmt samþykktum framkvæmdum sem greiddar verða úr hússjóði.   

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Falleg og vel staðsett eign í rólegu og eftirsóttu hverfi í Laugardalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Líkamsrækt og sundlaug Laugardals í næsta nágrenni.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing: 
Falleg aðkoma er að húsinu, íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er upp steyptar útitröppur norðanmegin.  Íbúðin er björt og vel skipulögð með aukinni lofthæð og fallegum listum. Sameign er snyrtileg og úr íbúð er einnig innangengt niður í sameign.
Forstofa með fatahengi, gengið inn hol sem tengir saman helstu vistarverur. Úr forstofu er hurð þar sem gengið er niður í sameign.
Eldhús er með gráum og stílhreinum innréttingum og uppþvottavél, ljós viðarborðplata og góðir efri skápar. Helluborð, bökunarofn (eldavél) og gufugleypir, endurnýjað 2024.
Stofa er í björtu og opnu rými við eldhús. Parket á gólfum.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og annað svefnherbergi minna. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með hvítum innréttingum og sturtubaðkari. Nýleg blöndunartæki við sturtu og handlaug.  Góður opnanlegur gluggi og gólf er flísalagt. Gólf parketlagt en flísalagt að hluta.
Þvottahús er staðsett í sameign, hver íbúð með sinn mæli.  Búið er að samþykkja að mála þvottahúsið og búið að ráðstafa fjármunum úr hússjóð í það verkefni.  
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn. Lóðin um 750 fm. að stærð.  
Bílskúr er 37,0 fm. að stærð með hita og köldu vatni.  Mjög stór og rúmgóður.
Inn af bílskúr er geymsla um 12,3 fm. að stærð. 
Bílastæði fyrir framan bílskúr. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu á íbúðin (0101) sérafnotarétt af innkeyrslu að bílskúr og bílastæði framan hans.

Framkvæmdir og viðhald:  
2026 verður þvottahús yfirfarið, (framkvæmdir í vinnslu). Búið er að samþykkja framkvæmdir í þvottahúsi og á stigagangi. Þvottahús verður málað. Stigagangur verður málaður og teppalagður. Búið er að samþykkja tilboð í bæði málun og teppalögn og verður sú framkvæmd greidd úr hússjóði. Einnig verður handrið í sameign endurbætt.  
2026 var skólp endurnýjað, settar plastlagnir undir hús og út í götu, nýr brunnur. Sett upp ný rafmagnstafla í sameign með mælum og tengingar við þvottavélar, íbúðir og bílskúr.
2023 var endurnýjað þak á geymslu við bílskúr (klæðning, þakpappi og rennur).  
2019 var endurnýjað þak á húsinu (þakjárn, pappi og þaksperrur eftir þörfum. Rennur og niðurföll).

Staðsetning er einstaklega góð og miðsvæðis.  Laugarnes- og Laugalækjarskóli eru í nokkurra mínútna fjarlægð, World Class og sundlaug Laugardals ásamt íþróttasvæði Þróttar og öllu því sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Verslun og þjónusta skammt frá og stutt í stofnbrautir. Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 90.550.000,-.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Laugarnesvegur 58

105 Reykjavík · Austurbær
TegundHæðStærð128,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
94.900.000 kr.739 þ./m²
Byggingarár1930InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2016918Fasteignamat89.950.000 kr.Brunabótamat65.140.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑