Um eignina
Vel skipulögð og snyrtileg stúdíóíbúð í mikið endurnýjuðu lyftuhúsi við Laugaveg 103. Húsið stendur við nýuppgerða, fallega göngugötu í hjarta borgarinnar. Íbúðin er á annarri hæð og er samtals 46,2 fm með 7 fm geymslu í kjallara. Rúmgóðar yfirbyggðar suðursvalir eru á íbúðinni sem hægt er að nýta allan ársins hring sem gefa einnig aukna hljóðvist.
Möguleiki er að allt innbúi fylgi með í kaupunum og er eignin laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Komið er inn í stigagang með kóðaopnun og lyftu.
Anddyri: Gengið er úr snyrtilegri sameign inn í forstofu með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa með útgengi á yfirbyggðar suðursvalir, stofa og eldhús/borðstofa eru í alrými. Parket á gólfi.
Eldhús: Með fallegri innréttingu og stein á borðum og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Svefnkrókur: Með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu og upphengdu salerni. Þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar í hólf og gólf.
Loftræstikerfi er í íbúðinni og brunakerfi. Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Frábærlega staðsett eign við endurnýjað Hlemmtorg og mathöll. Á svæðinu er fjölbreytt þjónusta, veitingastaðir, verslanir auk góðra almenningssamgangna. Endurnýjun Hlemmtorgs gerir svæðið að einu fallegasta svæði miðborgarinnar með göngugötu og fallegu torgi.
Eignin Laugavegur 103 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-8771, birt stærð 46.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-03, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 698-1164, dr@gimli.is eða Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, löggiltur fasteigna- og skipasali, í s. 792-7576, gudmunda@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...
Laugavegur 103
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























