Opið hús 8. nóv. kl. 14:00–14:45
1 af 39Um eignina
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Ásakór 6, 201 Kópavogur
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í góðu 3ja hæða klæddu lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara. Það eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, mjög fínar 9,7 fm suðursvalir, glæsilegt útsýni til norðurs að Esjunni með sjávarsýn. Þvottahús er innan íbúðar. Eignin getur verið laus fljótlega. Heildarstærð eignar er 140,4 fm íbúð, þar af er ótrúlega rúmgóð geymsla alls 16 fm með aukinni lofthæð. Leigð rafhleðslustöð er við merkt einkastæði í bílastæðahúsi. Gott aðgengi er að húsinu og engir þröskuldar eru innan íbúðarinnar. og skemmtilegar gönguleiðir, Vífilstaðavatn, Ellliðavatn, Guðmundarlundur, Kórinn (HK), verslanir og veitingastaðir. Góðar strætósamgöngur, m.a. strætisvagn nr. 2. sem gengur alla leið í miðbæ Reykjavíkur. Örstutt leið er á flóttamannaleiðina sem liggur alla leið inn í Hafnarfjörð gegnum Heiðmörk.
Núverandi skipulag: Forstofa,gangur, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í kjallara og stæði í upphitaðri bílageymslu.
Nánari lýsing eignar:
Fljótandi viðarparket er á öllum gólfum nema flísar eru á votsvæðum og forstofu.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp með rennihurðum og innri forstofuhurð sem aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar gera rýmið einstaklega bjart og opið. Útsýni með fjallasýn og sjávarsýn þó húsið sé staðsett í efri byggðum Kópavogs. Vítt er um húsið sem er ekki sjálfgefið í dag.
Eldhús: Í eldhúsinu er mjög vel með farin viðarinnrétting sem er innfelld með bakaraofni í vinnuhæð og góðum glugga við vaskinn. Innfelld uppþvottavél. Stæði fyrir ísskáp. við eldhúseyjuna er pláss fyrir barstóla og gott vinnupláss. Helluborð með eyjuháf.
Stofa/borðstofa: Eldhúsið er mitt á milli stofu og borðstofu í fljótandi alrými. Stofan er mjög rúmgóð og björt með skemmtilegum hornglugga með útsýni. Gengið er út á suðursvalir frá borðstofunni sem er í hinum enda alrýmisins, Þær komu verulega á óvart, eru ótrúlega stórar og rúmgóðar enda um 10 fm.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum á gólfi en hvítum á veggjum. Vönduð viðarinnrétting með góðu skúffu- og skápaplássi ásamt handlaug. Sturtuklefi er í einu horninu, upphengt salerni og krómaður handklæðaofn.
Herbergi I: Rúmgott með innbyggðum fataskáp hólf í gólf eftir einum vegg og rennihurðum. Allt er mjög vel með farið. Gluggi til suðurs með rúllugardínu og strimlagluggatjöldum.
Herbergi II: Mjög rúmgott herbergi nr. 2 með tvöföldum fataskáp hólf í gólf sem fer lítið fyrir bakvið hurðina. Útsýnisgluggi til norðurs, fjalla og sjávar. Strimlagluggatjöld og rúllugardína.
Herbergi III: Ágætlega rúmgott herbergi með norðurglugga með sama útsýninu og hinir í þessa átt. Tvöfaldur fataskápur bakvið hurðina sem er hólf í gólf.
Þvottahús: Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Stálvaskur og borðplata sem skapar gott vinnupláss, þvottasnúrur og gott hillupláss. Rennihurð.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 16 fm. Jafnframt er hún með aukinni lofthæð, svo hún býður upp á gífurlega mikið geymslupláss og extra háar hillur.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði, 01B04, fylgir íbúðinni í upphitaðri bílageymslu.
Sameign: Lyfta er í húsinu og sameiginlegt stigahús sem er verið að endurnýja teppi á og mála núna í vetur (stefnt á nóvember). Hjóla- og vagnageymsla auk eignarhluta í bílastæðahúsinu. Flestar íbúðir eiga stæði þar en ekki allar.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR**
**SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**
(Það er hægt að skoða með og án húsgagna með aðstoð gervigreindar. Smelltu þá á stólinn niðri í vinstra horni)
Þetta er einstaklega björt, vel með farin og falleg íbúð, sem seldist fyrst allra er íbúðir fóru í sölu 2017. það er stutt í Hörðuvallaskóla og Kóraskóla og svolítið lengra í Vatnsendaskóla og Lindarskóla í hina áttina. Leikskólarnir Kór, Baugur og Austurkór. Öll þjónusta er í hverfinu s.s. Krónan, Tvær Nettóverslanir, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Stutt er í golf og sund í Salarlaug. Fyrir heldri borgara er þjónustumiðstöð með starfsemi á daginn í Boðaþingi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897-7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822-5124

Ásakór 6
203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð140,4 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
94.900.000 kr.676 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2288676Fasteignamat92.800.000 kr.Brunabótamat87.710.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 39 myndir
Upp ↑