Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg og einstaklega björt 111,7 m², 3-4ra herbergja efri sérhæð með fallegu útsýni og sérinngangi í fallegu húsi við Drangsskarð 11 í Hafnarfirði. Útsýni er úr gluggum í þrjár áttir og frá rúmgóðum svölum með svalalokun til suðvesturs.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, sjónvarpshol (væri hægt að breyta í herbergi), forstofu, baðherbergi, þvottahús/geymsla, eldhús og stofu.
Sérbílastæði er fyrir utan eignina, þar sem búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Drangsskarð 11 hlaut verðlaun Hafnarfjarðarbæjar fyrir frágang á lóð og er fyrsta Svansvottaða byggingin í Hafnarfirði. Mikið hefur verið lagt í frágang bæði að innan og utan. Í íbúðinni er gólfhiti, ljósar Quartz borðplötur (Dekton), Siemens raftæki, niðurfellt spanhelluborð, undirlímdur vaskur og innfelld led lýsing. Sjálfstætt loftskiptikerfi er í öllum rýmum íbúðarinnar, endurnýtir hitann og skilar góðum loftgæðum.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Þvottahús/geymsla er inn af forstofu, með flísum á gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Skápur og vaskur.
Alrými er í stóru opnu rými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Stofa er einstaklega björt með fallegu útsýni og góðri borðstofu. Úr stofu er útgengt á fallegar svalir með svalalokun sem snúa til suður og vesturs. Hægt er að útbúa þriðja svefnherbergið úr hluta stofunnar, en í dag er þar sjónvarpshol.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn og niðurfelldur vaskur.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt að hluta með vönduðum 60x60 flísum. Á baði er sturta, vegghengt salerni, handklæðaofn og innrétting.
Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla og tæknirými.
Verð kr. 99.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Drangsskarð 11
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































