fasteignasölur.is
Rekagrandi 1 - íbúð 102
Nýtt
1 af 23

Um eignina

Viltu kynnir: Bjarta og fallega 66,8 fm 2ja herbergja íbúð við Rekagranda 1, Reykjavík.
Íbúðin er á jarðhæð í góðu fjölbýli með stórum sólpalli í suður út frá stofu.

Sérlega skemmtileg íbúð á þessum vinsæla stað í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi, þak endurnýjað 2024, stutt í leikskóla, Grandaskóla og íþróttasvæði KR. Grandinn í göngufæri með fjölda veitingastaða og stutt í útivist á Nesinu, einnig í göngufæri við Reykjavíkurhöfn og miðbæinn.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Lýsing íbúðar.
Anddyri með góðum skáp og fatahengi, flísar á gólfi.
Hol með skrifstofu / tölvuaðstöðu, parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með opnum fataskápum, parket á gólfi.
Eldhús opið við stofu með hvítri innréttingu og háu borði með borðaðstöðu, flísar á gólfi.
Búr/geymsla inn af eldhúsi,
Baðherbergi, flísalagt sem búið er endurnýja með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa, björt og rúmgóð með fallegum áföstum hvítum skápum og með útgengi út á afgirtan sólpall.

Í sameign er sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Fjölbýlishúsið er í góðu ástandi. Bílastæði fyrir framan hús.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Rekagrandi 1 - íbúð 102

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð66,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.500.000 kr.966 þ./m²
Byggingarár1983InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2024101Fasteignamat61.550.000 kr.Brunabótamat37.250.000 kr.
Skráð hjá
Elísabet KvaranLöggiltur fasteignasali781-2100 · elisabet@viltu.is
HeimilisfangBæjarlind 2, 201Sími583-5000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑