fasteignasölur.is
Ásabraut 15
1 af 12

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala  kynnir í einkasölu þriggja herbergja 67fm íbúð á annari hæð í tvíbýli.

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt óskráðu rými á háalofti. Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.

Forstofa er flísalögð.
Hol er flísalagt og hurð er frá holi niður í þvottahús en þar er málað gólf.
Í eldhúsi eru flísar á gólfi, viðarinnrétting og ofn, helluborð og vifta. 
Stofa er parketlögð.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og hluta af veggjum, lítill skápur, sturtuaðstaða og gluggi.
Svefnherbergin eru bæði parketlögð og nýlegur gluggi er í öðru herberginu.

Háaloft er fyrir ofan íbúðina, lítil lofthæð, parket á gólfi að hluta.  
Eignin þarfnast endurnýjunar og viðhalds að innan sem utan.
Búið er að endurnýja þakjárn.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Vill Stuðlaberg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is

Ásabraut 15

230 Reykjanesbær · Keflavík
TegundHæðStærð67,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
36.000.000 kr.531 þ./m²
Byggingarár1948InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2086868Fasteignamat37.000.000 kr.Brunabótamat36.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑