fasteignasölur.is
Kóngsbakki 5
Opið hús 7. nóv. kl. 13:00–13:30
1 af 24

Um eignina

Valhöll og Víðir Arnar kynna vel skipulagða og snyrtilega þriggja herbergja íbúð á annarri hæð við Kóngsbakka 5 í Reykjavík. Kóngsbakki er virkilega vel staðsettur þar sem stutt er í stofnbrautir og þjónustu í Mjódd.
Eignin er samkvæmt fasteignaskrá alls 87,4 m², þar af er íbúðin 79,3 m² og geymsla í kjallara 8,1 m². Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, rúmgott eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Fataskápar eru í báðum svefnherbergjum.

Nánari skipting og lýsing eignar:
Forstofa
er með skáp og hún opnast í alrými þar sem er annar skápur.
Stofan er rúmgóð með plássi fyrir borðstofuborð, útgengi á vestur svalir.
Eldhús er rúmgott með nýlegu helluborði, háfi og uppþvottavél.
Hjónaherberg með parketi og fataskáp
Svefnherbergi með parketi og fataskáp
Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla í kjallara er 8,1 m² og er innifalin í skráðri heildarstærð eignarinnar.

Virkilega falleg eign sem vert er að skoða.

Ítarlegri upplýsingar veitir:
Víðir Arnar Kristjánsson, löggiltur fasteignasali – S. 854 2226 eða vidir@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Kóngsbakki 5

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð87,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
61.500.000 kr.704 þ./m²
Byggingarár1970InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2048361Fasteignamat57.450.000 kr.Brunabótamat47.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑