fasteignasölur.is
Naustavör 7
1 af 24

Um eignina

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Virkilega björt, vel skipulögð og vönduð 90,2 fermetra 2ja – 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi úr stofu á stóra viðarverönd til suðurs, vesturs og norðurs í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu í þessu eftirsótta hverfi á Kársnesinu í Kópavogi.  
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Mjög góð aðkoma er að húsinu, fjöldi bílastæða á bílaplani og sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla.  Sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni.
Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is 


Lýsing eignar:
Forstofa
: flísalögð og með innbyggðum fata- og skóskápum.
Eldhús: er mjög bjart og rúmgott með góðri borðaðstöðu, miklum gluggum og góðri innréttingu með miklu skápaplássi, tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði, góðum hirslum og áfastri borðaðstöðu.  
Samliggjandi stofur, mjög rúmgóðar og bjartar með miklum gluggum í tvær áttir og útgengi á um 50 fermetra viðarverönd með skjólveggum til suðurs, vesturs og norðurs.  Mögulegt væri að útbúa auka svefnherbergi úr hluta af stofum.
Svefnherbergi, er rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc. og flísalögð sturta með sturtugleri.  Innbyggð innrétting í vegg með skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Innbyggð lýsing er í loftum íbúðarinnar og lofthæð í íbúðinni er meiri en gengur og gerist. 
Í kjallara eru:
Sérgeymsla, sem er 7,6 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð.

Lóðin er fullfrágengin með hitalögnum í gangstétt fyrir framan hús, mjög góðri aðkomu með fjölda bílastæða á malbikuðu stóru bílaplani og tveimur sameiginlegum rafhleðslustöðvum.
Byggingaraðili hússins var Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. - www.bygg.is 

Falleg og vönduð íbúð á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað á Kársnesinu - stutt í margvíslega þjónustu. Fallegar göngu/hlaupaleiðir og útivistarsvæði í nágrenninu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Naustavör 7

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð90,2 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
79.900.000 kr.886 þ./m²
Byggingarár2017InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2364435Fasteignamat94.800.000 kr.Brunabótamat73.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKringlunni 4-6, 103 ReykjavíkSími585-8800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑