fasteignasölur.is
Eskiás 3A
1 af 11

Um eignina

Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu einstaklega bjarta og fallega 4 herbergja íbúð með sér inngangi og svölum á 3. hæð í snyrtilegu húsi við Eskiás 3a í Garðabæ. 

Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023. Íbúðin er falleg og rúmgóð með 3 svefnherbergjum, stofu, borðstofu og eldhúsi í björtu alrými með útgengi á svalir.

Þetta er skemmtileg og frábær fjölskyldu íbúð á góðum stað í Garðabænum þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla og leikskóla. Íþróttasvæði Stjörnunnar, íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu, bókasafn og apótek í Litlatúni og á Garðatorgi.

Bókið skoðun: Unnur sími: 866-0507 eða unnur@gardatorg.is


Nánari lýsing:
Stofa og borðstofa: Bjart alrými með mikilli lofthæð, fallegum gluggum og parketi á gólfi. Gengið er út á svalir úr stofu.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, helluborði og bakarofni í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Opið er úr eldhúsi inni í stofu og borðstofu.
Svefnherbergin: öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Ljós innrétting með skúffum, sturtuklefi og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Sér geymsla er innan íbúðar og í sameign er sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Húsið Eskiás 3 er staðsteypt, einangrað að utanverðu og klætt og því viðhaldslítið. Öll bílastæði í hverfinu eru sameiginleg og gert er ráð fyrir rafhleðslubílastæðum. Djúpgámar fyrir sorp eru staðsettir á hornum lóðanna.
Í nágrenninu eru margar fallegar gönguleiðir um Ásana og Sjálandið, meðfram strandlengjunni og nærliggjandi svæði.

Allar upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteingasali sími: 866-0507 eða unnur@gardatorg.is


 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garðatorg eignamiðlun
94.900.000 kr.1043 þ./m²
+28,2% á 3 árum
31. júlí 2023Fyrsta sala
74.000.000 kr.813 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eskiás 3A

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð91 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
94.900.000 kr.1.043 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2523634Fasteignamat75.750.000 kr.Brunabótamat69.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími545-0800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑