fasteignasölur.is
Lækjarhvammur 15
Opið hús 7. nóv. kl. 14:00–14:30
1 af 32

Um eignina

Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna:  Virkilega fallega og vel staðsetta, 68.5 fm, 2-3ja herbergja íbúð með sér inngangi að Lækjarhvammi 15, 220 Hafnarfjörður.
Eignin skiptist í, forstofu, gang, svefnherbergi, geymslu, baðherbergi, eldhús og stofu.
Eignin Lækjarhvammur 15 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-7707, birt stærð 68.5 fm. Nánar tiltekið eign merkt 00-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Íbúðin var endurnýjuð að innan árið 2023 af fagmönnum og var m.a. settur gólfhiti, hljóðdúkur settur í hluta lofts,  innfelld lýsing sett með Pled ljósastýringu og góð loftræsting sett inn á bað. 
* Gengið er að íbúðinni m.a. norðan megin við húsið niður göngustíginn.

Bókið skoðun hjá Herdísi í síma 694-6166 eða herdis@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa/Gangur: Rúmgóður með harðparketi á gólfi og gólfhita, gert er ráð fyrir auka herbergi þar sem nú er opið hol.
Svefnherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og gólfhita, hljóðdúk í lofti og innfelldri lýsingu, aukin lofthæð.
Geymsla/fataherbergi: Er inn af svefnherbergi og með harðparketi á gólfi. Nýtist einnig sem fataherbergi.
Baðherbergi: Afar rúmgott og flísalagt í hólf og gólf og hiti í gólfi. Góð þreplaus sturta með glerþili, innrétting, veggfast salerni, skápar og rými fyrir þvottavél og þurrkara. innfelld lýsing, aukin lofthæð.
Eldhús og stofa: Eru í opnu og björtu rými: Hvít eldhús innrétting með innbyggðri uppþvottavél. Harðparket er á gólfi og gólfhiti.
* Skipulag eignar er ekki í samræmi við samþykktar teikningar.
Niðurlag: Afar falleg og björt eign á rótgrónum og eftirsóttum stað í Hafnarfirði.

* Íbúðin er tóm en notast er við gervigreind til að gefa hugmyndir að skipulagi með húsgögnum og ýmsar hugmyndir að garði.

Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur herdis@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Lækjarhvammur 15

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð68,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
53.500.000 kr.781 þ./m²
Byggingarár1984InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2077707Fasteignamat57.000.000 kr.Brunabótamat37.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipholt, 35 Rvk. - Eyravegur 29, Selfoss, 105 Reykjavík - 800 SelfossSími570-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑