fasteignasölur.is
Þangbakki 8
Nýtt
1 af 17

Um eignina

Miklaborg kynnir. Falleg og björt 83,2 fm þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin snýr til suðurs og er staðsett á þessum eftirsótta stað, þar sem öll þjónusta er við höndina. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö góð svefnherbergi. Sérgeymlsa með hillum í kjallara og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Íbúðin er laus strax.

Vel staðsett íbúð í Mjóddinni. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, strætó, skóla, heilsugæslu og margskonar aðra þjónustu.


Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing

Inngangur/hol með skáp og flísar á gólfi.

Eldhús með eldri innréttingu, rúmgóður borðkrókur og útgengi á stórar suðursvalir.

Flísar á gólfi

Stofa björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi.

Tvö svefnherbergi annað stærra með góðum skápum

meðfram einum veggnum og hitt minna. Parket á gólfum.

Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt gólf og flísar fyrir ofan baðkar.

Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir allar íbúðir hæðarinnar.

Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla.

Íbúðin er staðsett í húsi við hliðina á verslunarmiðstöðinni Mjódd og er gönguleiðin þar á milli með snjóbræðslukerfi sem tryggir gott aðgengi allt árið um kring.

Þangbakki 8

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð83,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
62.500.000 kr.751 þ./m²
Byggingarár1979InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2046954Fasteignamat56.900.000 kr.Brunabótamat43.550.000 kr.
Skráð hjá
Kjartan Ísak GuðmundssonLöggiltur fasteignasali, B.Sc í viðskiptafræði663-4392 · kjartan@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑