fasteignasölur.is
Árakur 1
Opið hús 8. nóv. kl. 14:00–15:00
1 af 35

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is  Betri Stofan kynna Árakur 1, fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með rúmgóðri viðarverönd í góðu 6 íbúða fjölbýlishúsi á eftirsóttum og skjólsælum stað við Árakur 1 í Garðabæ.   

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa með tvöföldum skáp.  
Eldhús, borðstofa og stofa í  opnu rými með útgengi út á sólpall sem snýr í suðvestur átt.
Eldhús með stáltækjum með eyju sem tengir eldhús við borðstofu og stofu. 
Hjónaherbergi er rúmgott með skápum.
Svefnherbergi er rúmgott með skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi, baðkar, sturtuklefi og innrétting. Gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús er með innréttingu, góðri vinnuaðstöðu, flísalagt gólf með gólfhita. Gluggi með opnanlegu fagi.
Sérgeymsla íbúðar 14,9 fm er í kjallara með hillum.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. 
Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu og nægum bílastæðum.
Húsfélag er starfandi í húsinu.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Akralandinu þaðan sem stutt er í leikskóla, Hofstaðaskóla, Fjölbrautarskólann í Garðabæ, íþróttasvæði, matvöruverslun og út á aðalbrautir.

Húsið er viðhaldslétt, byggt árið 2007 í góðu ástandi að utan, álklætt og með ál/timbur gluggar.  
Samkvæmt FMR skiptist eignin í íbúð 93,4 fm og geymsla 14,9 fm, samtals 108,3 fm.

Nánari upplýsingar veitr: Jason Kr. Ólafsson s. 775 1515  - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Árakur 1

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð108,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
86.900.000 kr.802 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2284172Fasteignamat87.100.000 kr.Brunabótamat60.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑