Um eignina
Um er að ræða mikið endurnýjað sumarhús í landi Úthlíðar í Biskupstungum sem að stendur á 5000 fm leigulóð í gróinni sumarhúsabyggð.
Eignin stendur á glæsilegum útsýnisstað við Mosaveg í í Úthlíð í Biskupstungum. Stórar og skjólsælar verandir með miklu útsýni og heitum potti.
Húseignin er 110.7 fm auk svefnlofts sem að er ekki í skráðum fermetrum en er ca. 15 fm. og eru því nýtanlegir fermetrar alveg 125 fm.
Eignin er klædd að hluta að utan með bárujárni. Ný rotþró er við hús og þá er búið að endurnýja allt rafmagn í húsi.
BÚSTAÐUR GETUR FENGIST AFHENTUR VIÐ KAUPSAMNING.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og er baðherbergi innaf hjónaherbergi, aðalbaðherbergi, geymslu, inntaksrými, mjög gott svefnloft sem að er með ágætis lofthæð og er gluggi á efri hæð.
Góður afgirtur sólpallur er til suðurs og vesturs við hús og er hitaveitupottur á verönd.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inní rúmgóða forstofu og þaðan er inngengt í góða geymslu/þvottaherbergi.
Hol þaðan sem gengið er í önnur rými eignar og eins er stigi þaðan uppá svefnloft.
Þrjú góð svefnherbergi og er baðherbergi innaf hjónaherbergi.
Rúmgott baðherbergi sem að er allt ný endurnýjað með Walk-in sturtu og er ágætis pláss framan við baðherbergi.
Stofa og borðstofa er opið og bjart rými með góðum gluggum til suðurs.
Eldhús er innaf stofu með nýlegri eldhúsinnréttingu, efri og neðri skápar, flísar á veggjum að hluta, eldunareyja, útgengt á suður-verönd um tvöfalda hurð úr eldhúsi.
Mjög gott svefnloft á efri hæð með glugga.
Skjólgóðar verandir eru í kringum hús og gott úti/leiksvæði á lóðinni.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum húss.
Úthlíðar sumarhúsasvæðið er með 4 síma öryggishliðum og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er á svæðinu.
Öflugt sumarhúsafélag er rekið á svæðinu og er árgjald í það kr. 16.000.-
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Úthlíð en þar er t.d 9 holu golfvöllur, hestaleiga og í Réttinni er veitingarstaður o.fl.
Mjög stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði, útivistarsvæðið Geysir er í 10 mín akstri og ca. 15 mín akstur er á Flúðir og Laugarvatn.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við komum og metum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Mosavegur 8
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























