fasteignasölur.is
Hákot
1 af 51

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.

KARTÖFLURÆKTARBÝLIÐ HÁKOT Í ÞYKKVABÆ.
Jörðin er staðsett í Þykkvabæ í Rangárþingi ytra og með í kaupunum fylgir jörðin Skinnar og lóðin Skinnar lóð 2, sem hvoru tveggja er einnig er í Þykkvabænum. Heildarstærð jarðanna er um 98 hektarar.  Þar af eru ræktuð garðlönd um 10 hektarar.  Býlið er í fullum rekstri og með í kaupunum fylgja öll tæki til kartöfluræktar.

Íbúðarhús:
Húsið, sem er á tveimur hæðum, er byggt úr steinsteypu árið 1969 og er klætt að utanverðu með bárujárni og lerki. Stærð 299,2 fm.  Búið er að endurnýja glugga, gler og hurðir.  Efri hæðin telur:  Anddyri með flísum á gólfi.  Stofu með parketi á gólfi.  Eldhús með flísum á gólfi, ágætri innréttingu og hurð út á svalir.  Bakinngang með flísum á gólfi.  Gang með parketi á gólfi. Fimm svefnherbergi með dúk á gólfum, skápur er í hjónaherberginu, geymslu.  Baðherbergi með flísum á gólfi og baðkeri.  Sérinngangur er á neðri hæðina og einnig er stigi á milli hæða.  Á neðri hæð er:  Þvottahús með flísum á gólfi. Vinnustofa með flísum á gólfi, geymsla með máluðu gólfi og bílskúr með inkeyrsludyrum.  Húsið er kynt með rafmagni.  

Útihús:
Notkun                        Byggingarár Stærð         Byggingarefni    

    Garðávaxtageymsla    1980        180        Stágrind járnkl einangrað
    Garðávaxtageymsla    1980        180        Stágrind járnkl einangrað
    Garðávaxtageymsla    1980        180        Stágrind járnkl einangrað
    Hesthús                      1980         108        Stágrind járnkl einangrað

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:
    
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gumundur@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Hákot

851 Hella (dreifbýli)
TegundJörð/LóðStærð100985,2 m²
220.000.000 kr.2 þ./m²
FasteignanúmerF2198501Fasteignamat76.347.000 kr.Brunabótamat187.270.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 51 myndir

Upp ↑