fasteignasölur.is
Hjallalundur 9 - 401
Opið hús 9. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 32

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Hjallalundur 9 - 401 

Um er að ræða bjarta fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Svalir til vesturs með góðu útsýni. 

Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu, sér geymsla í sameign ásamt hlutdeild í vagna- og hjólageymslu. 

Anddyri
með parket á gólfi, á gangi eru fataskápar og opið fatahengi. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfum og fataskápum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask og tengi fyrir þvottavél á baði. 
Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi, eldri innrétting sem búið er að mála efri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Útgengi út á stórar svalir til vesturs úr stofu með góðu útsýni. 
Sér geymsla í sameign á 1. hæð. Sameign er mjög snyrtileg og vel við haldið. 

Annað: 
- Gott útsýni
- Húsið málað að utan 2019
- Nýtt gler austan megin bæði í íbúð og sameign ca 2022
- Nýjir gluggar og gler, svalahurð vestan megin 2026
- Svalagólf málað sumarið 2026
- Stigagangur málað ca 2019 og nýtt teppi á stigagang fyrir nokkrum árum. 
- Sameign á 1. hæð málað 2025 
- Ljósleiðari 
- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fl. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Hjallalundur 9 - 401

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð82,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
51.900.000 kr.631 þ./m²
Byggingarár1979InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2147451Fasteignamat46.150.000 kr.Brunabótamat45.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑