Um eignina
Fallegt 119,4 fm, 5 herbergja raðhús á frábærum stað í fjölskylduhverfi í Grafarvogi. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og gestasalerni. Tvö merkt bílastæði framan við hús. Nýlega var húsið múrviðgert og málað og þak einnig.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt á góða afgirta timburverönd sem snýr til suðurs.
Eldhús er með góðu skápa- og borðplássi, flísar á milli efri og neðri skápa ásamt borðkrók, parket á gólfi.
Gestasalerni er við forstofu sem og þvottahús sem er nokkuð rúmgott með góðu skápaplássi.
Nánari lýsing efri hæðar:
Svefnherbergin eru fjögur með parketi á gólfum og fataskápum. Útgengt út á litlar svalir úr hjónaherbergi.
Baðherbergið var tekið í gegn fyrir nokkrum árum og er með steyptri sturtu með glervegg og fallegri innréttingu.
Geymsla er á hæðinni.
Einnig fylgir eigninni hlutdeild í úti geymslu. Fyrir framan hús er lítill garður. Tvö bílastæði fylgja eigninni fyrir framan hús.
Nýlega er búið að skipta um innihurðar, parket, eldhústæki og fl.
Góð fjölskyldu eign á vinsælum stað þar sem stutt er í flest alla þjónustu skóla, leikskóla, íþróttir og fl.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf | ss@aldirfasteignir.is og Freyja Rúnarsdóttir lgf | freyja@aldirfasteignir.is eða 694-4112
---------------------------------------------------------------
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Laufengi 142
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























