Um eignina
Miklaborg kynnir:
Virkilega björt og rúmgóð 200 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi með góðum bílskúr og stórri verönd á frábærum stað í Norðurmýrinni.
NÁNARI LÝSING: Sérinngangur inn í anddyri með fatahengi og gestasalerni. Þaðan er gengið inn í gott sjónvarpshol. Eldhús er með vandaðri innréttingu, borðkrók, tengi fyrir uppþvottavél og stórum gluggum. Björt stofan er sérlega rúmgóð og skiptist í stofu, borðstofu og skemmtilega arinstofu. Útgengt úr stofum út á verönd í suður. Svefnherbergisálma með flísalögðum gangi. Tvö góð barnaherbergi, annað er sameinað úr tveimur litlum og auðvelt er að breyta til baka. Hjónaherbergið er rúmgott með útgengi á veröndina. Baðherbergið er með glæsilegri innréttingu með tveimur vöskum, sturtuklefa, baðkari og skáp fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af sjónvarpsholi er góð geymsla og í gegnum hana gengt út í bakgarðinn.
Bílskúrinn er rúmgóður með salerni og sturtuaðstöðu. Í kjallara hússins er stórt upphitað geymslurými sem ekki er skráð í fermetra eignarinnar.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr ljósri eik, hurðir í stíl og allur frágangur vandaður. Fallegt viðarparket er á stofum, flísar á anddyri, eldhúsi, sjónvarpsholi og baðherbergjum en nýlegt harðparket á svefnherbergjum.
Falleg neðri sérhæð á frábærum stað við Flókagötuna móts við Klambratúnið.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Flókagata 47
Staðsetning
Allar 42 myndir
Upp ↑








































