Um eignina
Íbúðin er skráð skv. HMS 119,1 fm, auk stæðis í bílageymslu sem er ekki inni í fermetratölu.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgóða geymslu innan íbúðar og stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.is
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús er rúmgott með fallegri viðarinnréttingu og flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt er á góðar svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Tvö góð barnaherbergi eru með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtubaðkari og fallegri innréttingu.
Þvottahús er rúmgott með ljósri innréttingu og flísum á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar, rúmgóð með glugga og parketi á gólfi. Hægt er að nýta hana sem fjórða svefnherbergið eins og hún hefur verið nýtt hjá núverandi eigendum.
Parket er á gólfum nema flísar eru á forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Bílageymsla: Stæði er í lokaðri bílageymslu. Inn af stæðinu eru góðir geymsluskápar auk þess eru hillur í bílageymslu sem nýtast vel sem geymslurými..
Sameiginleg hjólageymsla er í sameign.
Grunnskóli, leikskóli og önnur þjónusta eru í næsta nágrenni. Falleg eign í góðu hverfi sem vert er að skoða.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Andrésbrunnur 17
Staðsetning
Allar 28 myndir
Upp ↑


























