1 af 46
Um eignina
Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna mjög glæsilega 201,3 fm efri sérhæð með innbyggðum bílskúr í tvíbýlishúsi á einstaklega góðum stað við Ólafsgeisla 119, Grafarholti, 113 Reykjavík.
Fjögur svefnherbergi. Eldhús endurgert fyrir 2 árum. Hjónasvíta með sérbaðherbergi og fataherbergi. Innangengt í bílskúr og tómstundarherbergi í kjallara sem einnig getur nýst sem svefnherbergi. Húsið stendur í botnlangagötu við óbyggt ræktað svæði til suðurs og austurs. Fallegar innréttingar í eldhúsi og hátt til lofts, innhurðar eru óvenju háar eða 2,4 m og gefa rýmum glæsilegt yfirbragð. Gegnheilt parket úr hnotu er á gólfum, ásamt flísum í forstofu og votrýmum. Gólfhiti er í öllum rýmum. Tvö baðherbergi. Annað þeirra inn af hjónasvítu.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 225-9016, nánar tiltekið eign merkt 02-01. Íbúðin á efri hæðinni er skráð 148,5 fm, herbergi og geymsla í kjallara eru skráð samtals 26,9 fm . Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-03 stærð bílskúrs er 25,9 fm , birt heildarstærð 201.3 fm. Svalir eru til suð-austurs og eru skráðar 4,9 fm.
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í 699 7372 eða venni@remax.is og Magga í 698 7494 eða magga@remax.is
Nánari lýsing á eign:
Góð og snyrtileg aðkoma. Gengið er beint að hæðinni og bílskúr frá bílastæði. Hellulagt fyrir framan bílskúr.
Forstofa er með góðum fataskáp með rennihurðum, ljósar flísar á gólfi.
Gangur er breiður og bjartur opin inn í eldhús og stofu með aðgengi í önnur rými.
Stofa og borðstofa eru í samliggjandi rými með opnu eldhúsi. Bjart og fallegt rými með stórum gluggum þar sem hægt er að fylgjast með sólarupprásinni. Flott útsýni í átt að golfvöll G.R. og náttúruna allt í kring. Útgengi er út á svalir sem snúa í suð-austur og vísa út í náttúruna. Eldhúsið var endurgert fyrir um 2 árum síðan á vandaðan hátt. Gott skápapláss og vinnurými. Tveir ofnar og háfur í helluborði. Stór eyja.
Baðherbergi er vel útbúið með ljósum flísum á gólfi og dökkum flísum á veggjum innan sturtu og upp hálfan vegg hjá innréttingu og upphengdu salerni. Sturtan er stór góð með innbyggðum blöndunartækjum og glervegg. Hvít innrétting með ofanáliggjandi vaski, stórum spegli með góðri lýsingu. Gluggi er á baðherbergi.
Hjónasvíta ( Hjónaherbergi - Fataherbergi - Baðherbergi ) Glæsileg hjónasvíta. Innaf svefnherbergi er komið inn fataherbergi með opnum fataskápum. Þar fyrir innan er sér baðherbergi með opnanlegum glugga, dökkum flísum á gólfi með leðuráferð og mosaik flísar á veggjum, glæsilegu frístandi baðkari, innbyggðum blöndunartækjum, hvítri innréttingu með svartri steinplötu ásamt speglaskáp með baklýsingu fyrir ofan vask.
Þrjú herbergi, tvö með skápum. Þau eru öll björt með háum fallegum gluggum. Möguleiki er að nota sjónvarpsrými/tómstundarými á neðri hæðinni sem svefnherbergi líka.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, skolvask og opnanlegum glugga. Ljósar flísar á gólfi.
Geymsla er innaf herbergi á neðri hæð.
Bílskúr er 25,9 fm innbyggður með heitu og köldu vatni, gólfhita og rafmagnshurða opnara ásamt hillum og gluggum sem gefa birtu inn. Gengið er beint inn í bílskúr frá hellulögðu plani með snjóbræðslu.
Hleðsla fyrir rafbíl fylgir með og tvö sérstæði fylgja eigninni.
Einstök staðsetning í botnlangagötu og við óbyggða náttúruperlu og örstutt er á golfsvæði GR.
Hátt til lofts í öllum rýmum á aðalhæð.
Innbyggð lýsing í öllum rýmum.
Gólfhiti með stýringu í öllum rýmum, þ.m.t. í bílskúr.
Gólfefni: Gegnheilt parket úr hnotu er á gólfum, ásamt flísum í forstofu og votrýmum, lakkað gólf í bílskúr og lakkað gólf í geymslu.
Innihurðir allar í yfirstærð ( nema hurð inn í bílskúr frá íbúð)
Allar innréttingar og efnisval mjög vandað. Glæsileg eign í alla staði.

Ólafsgeisli 119
113 Reykjavík · Grafarholt
TegundHæðStærð201,3 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
149.900.000 kr.745 þ./m²
Byggingarár2002InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2259016Fasteignamat144.300.000 kr.Brunabótamat95.000.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 46 myndir
Upp ↑