fasteignasölur.is
Fljótasel 22
Opið hús 10. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 44

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu mikið endurnýjað 260,5 m² raðhús með aukaíbúð og bílskúr við Fljótasel 22 í Reykjavík.
Eignin hefur verið endurnýjuð að innan og utan á undanförnum árum.

Meðal framkvæmda eru nýtt þak, endurnýjun eldhúss, baðherbergis og gestasalernis, ný gólfefni ásamt múrviðgerðum og málun að utan.


Helstu endurbætur:
  • 2018: Nýtt þak.
  • 2022/2023: Eldhús, baðherbergi á efri hæð, gestasalerni og gólfefni uppfærð.
  • 2022: Húsið múrviðgert og málað að utan.
  • 2022: Loft sléttuð og máluð.
  • 2017/2018: Nýir gluggar á suðurhlið.
  • Baðherbergi kjallaraíbúðar hefur einnig nýlega verið tekið í gegn.
Aðalíbúðin er á tveimur hæðum. Í kjallara er 57,3 m² aukaíbúð með sérinngangi sem er í útleigu. Eigninni fylgja bílskúr, fallegur afgirtur garður með stórum palli og rúmgóðar svalir. Í bílskúr er þriggja fasa rafmagn og tenging fyrir rafbílahleðslustöð. Á palli eru tengi og lagnir fyrir heitan pott.

Eignin skiptist í:
  • 91,1 m² aðalhæð: Anddyri, stofu og borðstofu, eldhús, gestasalerni og búr/þvottahús.
  • 91,1 m² efri hæð: Svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol.
  • 57,3 m² kjallaraíbúð: Anddyri, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og rúmgott svefnherbergi.
  • 21 m² bílskúr.
Nánari lýsing

Aðalhæð:
Komið er inn í rúmgott, flísalagt anddyri með góðum skáp með speglahurð. Inn af anddyri er gestasalerni sem var uppfært 2022/2023.

Stofa og borðstofa mynda rúmgott rými með nýlegu harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir.

Eldhúsið er hálfopið við stofuna og var uppfært 2022/2023. Þar er góð innrétting með miklu skápaplássi, ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og harðparket á gólfi.

Inn af eldhúsi er búr/þvottahús með góðu skápaplássi, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Efri hæð:
Hjónaherbergi er með nýlegu harðparketi á gólfi og innbyggðum skáp. Úr herberginu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.

Tvö barnaherbergi eru með nýlegu harðparketi á gólfum. Annað þeirra er með tvöföldum skáp.

Sjónvarpshol er rúmgott og með nýlegu harðparketi á gólfi. Rýmið er undir súð og hafa veggir og loft verið lagfærð. Samkvæmt upplýsingum eiganda hafði áður fengist samþykki fyrir hækkun þaks til að koma fyrir tveimur herbergjum í rýminu. Staðfesta þarf gildandi leyfi og hvort sækja þurfi um að nýju.

Baðherbergið var uppfært 2022/2023 og er flísalagt á gólfi og veggjum. Þar eru sérstætt baðkar, sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn og vaskur með innréttingu.

Þriggja herbergja kjallaraíbúð: 
Íbúðin er með sérinngangi og er í útleigu.  Anddyri er flísalagt og plastparket á gólfum í holi, stofu og rúmgóðu hjónaherbergi.
Eldhús er með góðri innréttingu og góðu skápaplássi.
Baðherbergi hefur nýlega verið tekið í gegn og er flísalagt á gólfi og veggjum, með sturtuklefa.
Við inngang kjallaraíbúðar er köld geymsla.

Bílskúr:
Bílskúrinn er 21 m², með steyptu gólfi og millilofti. Hann er ágætlega djúpur og með þriggja fasa rafmagni og tengingu fyrir rafbílahleðslustöð.

Garður og umhverfi:
Fallegur, afgirtur og gróinn garður með stórum palli og tengjum og lögnum fyrir heitan pott. Gengið er út í garðinn af aðalhæð.

Fyrir framan húsið er fallegt sameiginlegt útisvæði með leiktækjum. Upphitaður göngustígur liggur að húsinu.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala – sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasali

Netfang: runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Fljótasel 22

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundRað-/parhúsStærð260,5 m²Herbergi7Svefnherb.4Baðherb.2
139.900.000 kr.537 þ./m²
Byggingarár1978InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2056937Fasteignamat130.300.000 kr.Brunabótamat119.490.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑