fasteignasölur.is
Úugata 13
1 af 8

Um eignina

Bókið skoðun - sýnum samdægurs. Helgi Jónsson, Löggiltur fasteignasali, sími : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is. Matthildur Sunna Þorláksdóttir, Löggiltur fasteignasali, sími : 690-4966 eða á matthildur@fstorg.is
Smelltu HÉR til að fá söluyfirlit - smelltu HÉR til að fara inn á heimasíðu verkefnis

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Glæsilegt NÝTT fjögurra herbergja raðhús með tveimur og hálfu baðherbergi, á tveimur hæðum með bílskúr við Úugötu 13 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 169,9 fm, þar af íbúðarhluti á tveimur hæðum 145,4 fm og bílskúr 24,5 fm.  Á neðri hæð er anddyri, svefnherbergi með salerni inn af, þvottahús, geymsla og bílskúr. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, þar af annað með baðherbergi inn af, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt og fallegt útsýni er af efri hæðinni. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ.


Eignin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu seljanda í mars 2027. Vandaðar innréttingar frá Nobilia/GKS trésmiðju, með áferðum í hnotu og hvítu, og kvartsborðplötur í eldhúsi. Eldhústæki eru frá Siemens og spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Húsið er með gólfhitakerfi með þráðlausri stýringu. Loftskiptakerfi er í húsinu. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Sjá nánar í skilalýsing seljanda.

NÁNARI LÝSING : 
Neðri hæð : 

Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp. Inn af herbergi er salerni með flísalögði gólfi og upphengdu saleri, gluggi er á baði.
Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu og skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, flísar á gólfi.
Geymsla á gangi við inngang.
Bílskúr er með steyptur og með vélslípuðu gólfi. Bílskúrshurð er með sjálfvirkum opnunarbúnaði með fjarstýringu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla við hvern bílskúr.
Efri hæð : 
Eldhús er með fallegri innréttingu frá Nobilia/GKS trésmiðju, í hnotu og hvítu og með kvartsborðplötu. Spanhelluborð frá BORA með innbyggðum háfi er fellt niður í borðplötu. Innbyggður kæli-/frystiskápur og uppþvottavél fylgja. Önnur eldhústæki eru frá Siemens.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi, aukin lofthæð og stórir gluggar til suðurs. Útgengt úr eldhúsi út á suður svalir með mjög fallegu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú (tvö á efri hæð og eitt á neðri hæð) og eru öll með fataskápum.
Baðherbergin eru tvö og eitt salerni og eru með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og baðherbergin með sturtu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi og salernið er inn af herbergi á neðri hæð.

Annað:
Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf. Húsið er staðsteypt, einangrað með steinull og klætt að utan með álklæðningarkerfi og bambusklæðningu. Gluggar, svalahurðir og inngangshurðir eru úr ál/tré.Innihurðir eru hvítar frá Grauthoff. Flísar eru frá Ceramiche Piemme, af gerðinni Journey í litnum Otta Natural, 60 × 60 cm, frá Álfaborg. Húsið er upphitað með gólfhitakerfi og handklæðaofnar eru á baðherbergjum. Rafrænt loftskiptikerfi er í húsinu og ljósleiðari verður til staðar. Lóð verður fullfrágengin með hellulögðum stéttum og þökulögðum grasflötum samkvæmt teikningum. Ídráttarrör eru út í baklóð fyrir vatn og eða auka lýsingu. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Sjá nánari upplýsingar í skilalýsingu seljanda.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Úugata 13

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð170,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.3
137.900.000 kr.811 þ./m²
InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2524787Fasteignamat75.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑