fasteignasölur.is
Eldshöfði 21
1 af 30

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala, Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Mjög áhugavert 436 fm atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum (aðalhæð og ris) vel staðsett við Eldshöfða 21. Um er að ræða endabil sem skiptist í 269,7 fm, opið og gott iðnaðarrými á neðri hæð og 166,3 fm vel innréttað og snyrtilegt skrifstofurými /herbergi á efri hæð. Til sölu eða leigu!

Nánari lýsing: 
Á neðri hæð er Stór innkeyrsluhurð (3,2m) og gönguhurð, góð lofthæð, stór og opinn salur, snyrting, skrifstofa og milliloft, niðurföll í gólfi. 
Á efri hæð eru fjögur snyrtileg og rúmgóð herbergi, gott opið alrými með stóru eldhúsi, tvö góð baðherbergi og geymsla.  Innangengt um sér inngang á framhlið hússins eða í gegnum sal á neðri hæð. 
Hæglega má skipta húsnæðinu upp, neðri hæðinni eða nýta efri og neðri hæð í sitthvoru lagi. Góð sér bílastæði eru framan við húsnæðið.

Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Ekki er vsk kvöð á húsnæðinu. 
Staðsetning eignarinnar er áhugaverð á Höfðanum, mikil uppbygging er allt í kring. 

Þetta er eign með mikla möguleika sem vert er að skoða. 
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Eldshöfði 21

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð436 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.3
174.900.000 kr.401 þ./m²
Byggingarár1987InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2510444Fasteignamat116.150.000 kr.Brunabótamat152.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑