fasteignasölur.is
Skerseyrarvegur 2
Opið hús 11. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 45

Um eignina

Einstakt og vel staðsett 99,3 fm einbýli við Skerseyrarveg 2, 220 Hafnarfirði.
Eignin skiptist í 39,7 fm hæð, 39,7 fm kjallara og 19,9 fm ris, samtals 99,3 fm skv. HMS.

Nánari lýsing:

Hæð: Anddyri. Stofa, borðstofa og eldhús. Eldhús með góðu vinnuplássi og eldavél. Stofa og borðstofa í björtu alrými.
Ris: Skiptist í sjónvarps- eða svefnherbergi og geymslu/skrifstofu. Gott geymslupláss undir súð.
Kjallari: Skiptist í hjónaherbergi með skápum, baðherbergi með sturtuklefa og handklæðaofni og þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt útg. á verönd. 

Rúmgott sérbílastæði er á lóð. Lóðin er umhirðulítil og með góðum palli ásamt garðkúlu sem hægt er að loka og veitir fullkomið skjól.
Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsett hús í botnalangagötu við hjarta Hafnarfjarðar þar sem alla helstu þjónustu má finna í göngufæri.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin en skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:

2006 - Ný eldhúsinnrétting og hringstigi á milli hæða.
2011 - Nýtt inntak fyrir kalt vatn, heitt vatn og rafmagn og skolplögn endurnýjuð út í götu.
2013 - Rafmagnstafla endurnýjuð.
2017 - Þak endurnýjað.
2018 - Eingrun í húsinu endurnýjuð með ull.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Skerseyrarvegur 2

220 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð99,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár1929FasteignanúmerF2078765Fasteignamat78.550.000 kr.Brunabótamat66.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑