1 af 30
Um eignina
Fallegt og vel skipulagt raðhús á einni hæð með rúmgóðum bílskúr og skjólgóðri verönd sem snýr til suðurs!
Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt 164,7 fm raðhús á einni hæð við Réttarheiði 22 í Hveragerði. Eignin stendur á góðum stað innarlega í litlum og rólegum botnlanga í grónu og fjölskylduvænu hverfi.
Húsið skiptist í 126,7 fm íbúðarhluta og 38 fm bílskúr. Íbúðin er fjögurra herbergja, með þremur svefnherbergjum og björtum og rúmgóðum alrýmum. Aukin lofthæð er í allri eigninni.
Við húsið er skjólgóð, hellulögð suðurverönd með heitum potti og timburskjólveggjum. Hellulagt bílaplan er fyrir framan húsið og þar er hleðslustöð fyrir rafbíl.
Skipulag og nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með tvöföldum fataskáp.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með aukinni lofthæð sem skapar opið og notalegt rými.
Eldhús: Rúmgóð eldhúsinnrétting með svarbrúnum neðri skápum og hvítum efri skápum.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú og eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir flísalagðir að hluta. Svarbrún innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og upphengt salerni.
Þvottahús: Staðsett á milli íbúðar og bílskúrs. Þar er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: Rúmgóður, 38 fm flísalagður bílskúr með geymslulofti og sérgeymslu. Útgengt er úr geymslunni í bakgarð.
Harðparket er á gólfum íbúðarinnar, að undanskilinni forstofu, baðherbergi og þvottahúsi, þar sem eru flísar.
Skjólgóð og hellulögð verönd snýr til suðurs og er afgirt með timburskjólveggjum sem skapa notalegt útisvæði. Á veröndinni er heitur pottur.
Bílaplan framan við húsið er hellulagt og búið hleðslustöð fyrir rafbíl.
Húsið er steinsteypt, byggt árið 2004 og klætt með liggjandi bárujárnsklæðningu. Undir húsinu er skriðkjallari.
Eignin er staðsett innarlega í litlum botnlanga í grónu og rólegu íbúðahverfi í Hveragerði.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali
Sími: 860-2078
Netfang: kristin@haborg.is

Réttarheiði 22
810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð164,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
92.800.000 kr.563 þ./m²
Byggingarár2004InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2270006Fasteignamat94.650.000 kr.Brunabótamat82.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 30 myndir
Upp ↑