fasteignasölur.is
DIGRANES - HÁVEGUR 2-4
Nýtt
1 af 5

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

DIGRANES - KÓPAVOGI - HÁVEGUR 2 OG 4.  Nýjar glæsilegar 3ja - 4ra herbergja íbúðir í 5 hæða lyftuhúsI á einstaklega góðum stað í Kópavogi. Íbúðirnar eru til afhendingar við kaupsamning fullbúnar án megingólfefna. Stærðir frá 82,2 -115 fm. Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðunum og möguleiki að kaupa aukastæði. Góðar 
Bókið skoðun hjá Daða í síma 824-9096, Hilmari í síma 824-9098 eða Þórarni í síma 899-1882. 
Góðar svalir út frá íbúðunum og tvennar svalir suður og norður í 4ra herbergja íbúðunum.
HEIMASÍÐA       SKILALÝSING     SÖLUYFIRLIT
EIGNIR ÓSELDAR Á HÁVEGI: (smelltu á númer til að sjá upplýsingar): HÁVEGUR 2:, 02-03, 02-04, 03-03. # HÁVEGUR 4: ÍB 01-05, 01-07, 02-07, 04-05 OG 04-06. 
ALMENNT UM EIGNIRNAR: Á lóðinni Álftröð 1  í Kópavogi er JÁVERK ehf að byggja fjölbýlishús með 180 glæsilegum og vel skipulögðum íbúðum sem verða Svansvottaðar. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna með vönduðum innréttingum frá Selós, steinn á borðum. Flísalögð baðherbergi og þvottahús (þar sem þau eru sér) með Limestone MGM, 60x60 cm flísum frá Ebson bæði gólf og veggir að hluta.  Hefðbundið ofnakerfi og ofnar eru í íbúðinni og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Hefðbundið útsogskerfi er í geymslum.
INNRÉTTINGAR: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós. Skápar eru úr vönduðu stitsterku melamin efni. Vönduð heimilistæki eru í íbúðum sem eru frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna og spanhelluborð. Dekton – Rem steinborðplötur eru í öllum eldhúsum og Silestone – Nolita steinborðplötur eru á böðum. Gólfhiti er í gólfi baðherbergis auk handklæðaofns. Bílastæði í kjallara fylgja öllum íbúðum og möguleiki er á að kaupa viðbótarstæði. 
GARÐUR: Sólríkur og skjólgóður inngarður með leiktækjum, gróðri og aðstöðu fyrir iðandi mannlíf. Glæsilegar íbúðir við Digranes með einstaklega góða staðsetningu fyrir barnafólk.
     
Nánar um íbúðirnar við Digranes:  Bjartar og vel hannaðar íbúðir sem gert er ráð fyrir að verði afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum, vandaðar flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsgólfi.
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna sem og að einnig var hugað að því að hver og ein íbúð hefur vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði.
Svansvottun:  Mjög er vandað til allrar framkvæmdar. Allt byggingarefni og öll framkvæmd verkefnisins miðast við kröfur Svansins. Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun

SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.  

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

DIGRANES - HÁVEGUR 2-4

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð0 m²
Tilboð
LyftaJáFasteignanúmerF4449998
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Allar 5 myndir

Upp ↑