fasteignasölur.is
Jaðarsel 10
Nýtt
1 af 20

Um eignina

Miklaborg kynnir: Jaðarsel 10 á Bifröst, 311 Borgarbyggð. Talsvert endurnýjað135,5 m2 einbýlishúshús á einni hæð. Gott alrými / stofa með útgengi á verönd mót suðri og austri, með góðum skjólvegg. Fjögur svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrting. Geymsla og þvottahús innan íbúðar. Húsið hefur verið talsvert endurnýjað að innan, utan eldhúss, en aðrar innréttingar og gólfefni húss eru ný. Nýjar borðplötur í eldhúsi. Lítið sérbýli í einni fallegasta héraði landsins með ótal gönguleiðum. Fossinn Glanni í í Norðurá, Golfvollurinn Glanni og Borgarnes með allri þjónustu innan seilingar Lögheimilisskráning heimiluð.

Hafið samband við Friðrik í s. 616 1313

Nánari lýsing; Komið inn í forstofu með gestasnyrtingu inn af. Fatahengi.. Gengið áfram inn í alrými og samliggjandi stofu með útgengi á góða verönd mót suðri og austri. Eldhúsinnrétting er með nýjum borðplötum. Góður borðkrókur með gluggum. Í húsinu eru fjögur góð svefnherbergi, flest með nýjum skápum. Baðherbergi er endurnýjað með innréttingu og walk-in sturtuklefa. Þvottahús með skolavaski er innan íbúðar með útgengi á stétt. Þar inn af er geymsla með hillum. Ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar og eru utanáliggjandi.
Gólfefni: Nýtt harðparket er á húsinu að mestu en flísar á forstofu, votrýmum og geymslu.
Góð verönd með skjólvegg er garðmegin og garðurinn grasi gróinn með trjágróðri. Húsið er nýmálað að innan og tilbúið til afhendingar.
Áhugavert sérbýli í sérlega fallegu umhverfi Borgarfjarðar á Bifröst. Húsið getur hentað hvort sem sem sumarbústaður fyrir einkaaðila og stéttarfélög eða fyrirtæki, sem og til heilsársbúsetu.
Allar upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is


Jaðarsel 10

311 Borgarnes (dreifbýli)
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð135,5 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
45.900.000 kr.339 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2109206Fasteignamat35.710.000 kr.Brunabótamat67.850.000 kr.
Skráð hjá
Friðrik Þ. StefánssonLögmaður og löggiltur fasteignasali616-1313 · fridrik@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑