Um eignina
Miklaborg kynnir: Jaðarsel 1, Bifröst, 311 Borgarbyggð. Mikið endurnýjað 110,0 m2 parhús á einni hæð. Gott alrými / stofa með útgengi á verönd mót suðri og austri, með góðum skjólvegg. Þrjú svefnherbergi, Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð, sem og innréttingar og gólfefni. Lítið sérbýli í einni fallegasta héraði landsins með ótal gönguleiðum. Fossinn Glanni í í Norðurá, Golfvollurinn Glanni og Borgarnes með allri þjónustu innan seilingar Lögheimilisskráning heimiluð.
Hafið samband við Friðrik í s. 616 1313
Nánari lýsing; Komið inn í forstofu með góðum fataskáp. Gengið áfram inn í alrými og samliggjandi stofu með útgengi á góða verönd mót suðri og austri. 'ibúðin er að mestu endurnýjð að innan og m.a. er eldhús alveg endurnýjað, innréttingar og tæki. Góður borðkrókur með gluggum á tvo vegu. Í húsinu eru þrjú góð svefnherbergi með nýjum skápum. Baðherbergi er endurnýjað með innréttingu og sturtuklefa. Þvottahús er inn af baðherbergi, Hillur á veggjum og skolvaskur. Skriðloft er yfir baðherbergi. Inn af þvottahúsi er geymsla með útgengi í garð. Dregið hefur verið í raflagnir að nýju að hluta og tenglar og innstungur endurnýjaðir.
Gólfefni: Nýtt harðparket er á húsinu að mestu en flísar á forstofu, votrýmum og geymslu.
Góð verönd með skjólvegg er garðmegin og garðurinn grasi gróinn með trjágróðri. Húsið er nýmálað að innan og tilbúið til afhendingar.
Áhugavert sérbýli í sérlega fallegu umhverfi Borgarfjarðar á Bifröst. Húsið getur hentað hvort sem sem sumarbústaður fyrir einkaaðila og stéttarfélög eða fyrirtæki, sem og til heilsársbúsetu.
Allar upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
Jaðarsel 1
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















