Um eignina
Miklaborg kynnir: Jaðarsel 2, Bifröst, 311 Borgarbyggð. 10,0 m2 parhús á einni hæð. Gott alrými / stofa með útgengi á verönd mót suðri og austri, með góðum skjólvegg. Þrjú svefnherbergi, Eldhús og baðherbergi. Sér geymsla innan íbúðar Lítið sérbýli í einni fallegasta héraði landsins með ótal gönguleiðum. Fossinn Glanni í í Norðurá, Golfvollurinn Glanni og Borgarnes með allri þjónustu innan seilingar Lögheimilisskráning heimiluð.
Hafið samband við Friðrik í s. 616 1313
Nánari lýsing; Komið inn í forstofu með fataskáp. Gengið áfram inn í alrými og samliggjandi stofu með útgengi á góða verönd mót suðri og austri. Eldhús með góðum borðkrók með gluggum á tvo vegu. Í húsinu eru þrjú góð svefnherbergi. Baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa. Þvottahús með skolvaski er inn af baðherbergi. Skriðloft er yfir baðherbergi. Inn af þvottahúsi er geymsla með útgengi í garð.
Gólfefni: Dúkur er á húsinu að mestu en flísar á forstofu, votrýmum og geymslu.
Góð verönd með skjólvegg er garðmegin og garðurinn grasi gróinn með trjágróðri.
Áhugavert sérbýli í sérlega fallegu umhverfi Borgarfjarðar á Bifröst. Húsið getur hentað hvort sem sem sumarbústaður fyrir einkaaðila og stéttarfélög eða fyrirtæki, sem og til heilsársbúsetu.
Allar upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
