Um eignina
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða snyrtilegt 6 herbergja 186,0 fm raðhús á þrem hæðum með sérinngangi, stæði í bílageymslu og lokuðum garði í Engjaseli 3 í Reykjavík. Af jarðhæð er gengið út í lokaðan garð í gegnum þvottahús. Múr við tröppur á inngangi lagfært sumar 2026 ásamt því að hús að framan var múrviðgert og málað, einnig var skipt um rennur að framan.
Stutt er í leik- og grunnskóla, strætó stoppar rétt hjá og er stór skiptistöð í Mjódd þar sem er líka heilmikil almenn þjónusta eins og Nettó, apótek, læknaþjónusta, bakarí og fleira. Íþróttastarf ÍR og Leiknis er ekki langt frá heldur.
Möguleiki er að nýta hluta jarðhæðar til útleigu og var gert áður. Við inngang í eignina eru tvö herbergi og er búið að breyta öðru herberginu í lítið eldhús. Við þessi tvö herbergi er líka baðherbergi með salerni, handlaug og sturtu.
Íbúðin er 63,5 fm (merkt 02-0101), íbúð er 60,5 fm (merkt 02-0201) og íbúð sem er 62,0 (merkt 02-0301), samtals er eignin skráð 186,0 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Jarðhæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, opin sturta, wc, lítil innrétting hillur og skápur.
Herbergin eru 3 og eru með parketi á gólfum og skápum. eitt er innréttað sem eldhús með flísum á gólfi, skápur, vaskur, helluborð ásamt lítilli innréttingu og háfur.
Þvottahús er með flísum á gólfi, skápar, vaskur og vinnuborð, ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er útgengt á lokaðan austurpall þar sem er geymsluskúr og rafmagnspottur.
Stigar á milli hæða eru með steinteppi.
Miðhæð:
Stofa er með flísum á gólfi og þaðan er útgengt á austursvalir.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, hvít innrétting ásamt veggklæðningu að hluta og háfur.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, wc og innrétting undir vask.
Herbergi er með plastparketi á gólfi og skáp.
Stigar á milli hæða er með steinteppi.
Efsta hæð:
Herbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum, skápum og aðalsvefnherbergi er með útgengi á austursvalir.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar með sturtu, wc, handklæðaofn og skápar yfir og undir vask.
Geymsla er rúmgóð undir súð og ekki hituð.
Eigninni fylgir svo stæði í bílageymslu og þar er líka hjóla- og vagnageymsla.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engjasel 3
Staðsetning
Allar 43 myndir
Upp ↑









































