Opið hús 8. nóv. kl. 16:00–16:20
1 af 58Um eignina
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu glæsilegt og rúmgott parhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr við Heiðarhjalla 7 í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin stendur á fallegum útsýnisstað og nýtur óhindraðs útsýnis til suðurs, vesturs og austurs. Húsið einkennist af björtum og rúmgóðum alrýmum með aukinni lofthæð, glæsilegri hjónasvítu og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum á jarðhæð. Skjólgott útisvæði með timburverönd og heitum potti.
Hér er um að ræða einstaklega rúmgóða fjölskyldueign. Á efstu hæð er bjart og glæsilegt alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi ásamt suðursvölum. Á miðhæð eru hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö önnur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á jarðhæð eru þrjú herbergi, baðherbergi og innangengt í bílskúr. Jarðhæðin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á aukaíbúðareiningar.
Birt stærð eignarinnar er 274,5 fm samkvæmt skráningu HMS, þar af er íbúðarhluti 251,0 fm og innbyggður bílskúr 23,5 fm. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1994 og stendur á gróinni lóð með góðri aðkomu og bílastæðum fyrir allt að þrjá bíla.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.
Nánari lýsing – miðhæð
Anddyri/hol er rúmgott með fataskáp. Frá holinu liggur stigi bæði upp á efstu hæð og niður á jarðhæð, gólfhiti og flísar á gólfi.
Hjónasvíta er rúmgóð með fataherbergi og sérbaðherbergi. Upphengdur skápur í hjónaherbergi fylgir eigninni, gólfhiti og flísar á gólfi.
Fataherbergið er í dag nýtt sem vinnuaðstaða og jafnframt er fataskápur fyrir framan baðherbergið.
Sérbaðherbergi hjónasvítu, flísalagt að mesu með innréttingu ogquartz-borðplötu, upphengdu salerni, baðkari og rúmgóðri sturtu, gólfhiti.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt að mestu með fallegri innréttingu og quartz-borðplötu, upphengdu salerni og rúmgóðri sturtu með glervegg, gólfhiti.
Þvottahús með góðu vinnuborði, stálvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara undir borði, flísar á gólfi.
Útgengt er frá stigapalli á milli miðhæðar og efstu hæðar út í skjólgóðan bakgarð þar sem eru timburverönd, sólpallar, skjólveggir og heitur pottur.
Nánari lýsing – efsta hæð
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými með uppteknu lofti, innfelldri lýsingu, stórum gluggum og óhindruðu útsýni til suðurs. Vegghengdur skápur fylgir eigninni, parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með fallegri innréttingu, stórri eyju og granítborðplötum. Gott skápa- og vinnupláss, innbyggður búrskápur og tækjaskápur, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Spanhelluborð og setuaðstaða eru í eyju og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Góður borðkrókur með útgengi á suðursvalir, gólfhiti og flísar á gólfi.
Sjónvarpsstofa er að hluta afmörkuð frá alrýminu með innbyggðum hillum, flísar á gólfi.
Suðursvalir með útgengi frá eldhúsi og fallegu, óhindruðu útsýni.
Nánari lýsing – jarðhæð
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Hol með stiga upp á miðhæð og innbyggðum skáp undir stiga, flísar á gólfi og parket á stiga.
Herbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi II og III með fataskápum og hefur verið opnað á milli herbergja (annað þeirra skráð sem geymsla á teikningum), parket á gólfi.
Bílskúr er 23,5 fm með gluggum, vaski og inntökum fyrir vatn og rafmagn. Innangengt er í bílskúr frá jarðhæð hússins.
Nettenging er í öllum herbergjum og uppsett öryggiskerfi frá Securitas með reykskynjurum, myndavélum, myndavél í dyrabjöllu, hurðarskynjurum og hreyfiskynjara.
Húsið er steinsteypt, byggt árið 1994, með máluðum útveggjum, járnklæddu þaki og timburgluggum og -hurðum. Aðkoma að húsinu er snyrtileg með hellulögðu bílaplani og stæðum fyrir allt að þrjá bíla, snjóbræðsla í bílaplani sem nýtir affallsvatn frá húsinu.
Lóðin er gróin og falleg með hávöxnum trjágróðri við baklóð. Fyrir aftan húsið er óbyggt og skógi vaxið svæði sem skapar skemmtilega umgjörð og skjól. Bakgarðurinn er með timburverönd, sólpöllum, skjólveggjum og heitum potti. Útgengt er í garðinn frá stigapalli hússins og aðstaðan því þægileg og vel tengd íbúðarrýmunum.
Hér er um að ræða einstaklega rúmgott og vel skipulagt fjölskylduhús á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Björt alrými með aukinni lofthæð, glæsileg hjónasvíta, skjólgott útisvæði með heitum potti, innbyggður bílskúr og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar jarðhæðarinnar eru meðal helstu kosta eignarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Heiðarhjalli 7
200 Kópavogur
TegundRað-/parhúsStærð274,5 m²Herbergi8Svefnherb.6Baðherb.3
179.000.000 kr.652 þ./m²
Byggingarár1994InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2061495Fasteignamat173.550.000 kr.Brunabótamat94.470.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 58 myndir
Upp ↑