fasteignasölur.is
Rauðagerði 10
Opið hús 8. nóv. kl. 15:30–16:00
1 af 34

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Afar falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á jarðhæð í vel viðhöldnu fjölbýli við Rauðgerði 10 í Reykjavík. Vinsæl staðsetning í Gerðunum nálægt allri helstu þjónustu.

** 3 svefnherbergi
** Mikið endurnýjuð að innan
** Gott viðhald á húsi
** Frábær staðsetning

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 97,2m2.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, búr/geymslu, 3 svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp sem stúkað hefur verið af með viðarþiljum. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt. Útgengt er út á rúmgóða viðarverönd sem hefð er fyrir að nýtist jarðhæðinni. Parket á gólfi.
Eldhús er með fallegri lakkaðri innréttingu og hvítri borðplötu, bakaraofni, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og eyju með helluborði sem hægt að sitja við. Flísar á gólfi.
Búr/geymsla er inn af eldhúsi með rennihurð, innréttingu og hillum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I var útbúið af fyrri eigendum og er rúmgott. Áður var þar opið rými og væri auðvelt að breyta til baka í samræmi við upprunalegar teikningar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og "walk-in" sturtu. Flísar á gólfi og veggjum.
Í sameign er snyrtilegt þvottahús.
Hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir eigninni sem er inni á rafmagnsmæli eignarinnar.

Skipulagi eignar hefur verið breytt frá upprunalegri teikningu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Rauðagerði 10

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð97,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.771 þ./m²
Byggingarár1960InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2035401Fasteignamat67.900.000 kr.Brunabótamat49.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑