fasteignasölur.is
Hraunhólar 7
1 af 28

Um eignina

Hrafnkell Pálmi lgf. kynnir þessa vel skipulögðu og uppgerðu þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér bílastæði, sérinngangi og sér aðkomu. 
Húsið er steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með risþaki og aðkoma að íbúðinni frá Lynghólum.
Umferðalétt gata og rólegt umhverfi. 


Eignin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu, stofu, hjónaherbergi með fataherbergi, svefnherbergi II, baðherbergi, þvottaaðstaða og geymslu. 

Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 79.900.000-.

Nánari upplýsingar og bókaðu skoðun:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali /  690 8236 / hrafnkell@fastlind.is


Nánari lýsing eignar:
Anddyrið er rúmgott með skápum.
Eldhúsið er mjög rúmgott með parket á gólfi. Falleg innrétting með miklu skápaplássi og vinnurými. Rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Ofn í góðri vinnuhæð. Góðir gluggar. 
Stofan er mjög rúmgóð með parket á gólfi. 
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi. Fataherbergi innaf hjónaherbergi. Einnig er útgangur út á hellulagða verönd sem snýr í norð-vestur.
Svefnherbergi II er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja. Baðkar og góð walk-in sturta. Upphengt salerni. Vaskaskápur og speglaskápur. Handklæðaofn. 
Þvottahúsið er með flísum á gólfi.
Geymslan er inn af þvottahúsinu.

Eignin var uppgerð árið 2020 sbr. nýtt parket, nýjar hurðar, nýjar innréttingar og baðherbergi.
Húsið er steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með risþaki
Möguleiki er á því að setja stóra sérverönd.
Efri hæð er með aðkomu frá Hraunhólum.
Húsið málað að utan 2019.
Íbúð á jarðhæð merkt 001.
Húsið stendur á eignarlóð.


Hlutfallstala í húsi og lóð er 29%.

*ATH* Eldri meðfylgjandi teikningar endurspegla núverandi skipulag ekki að fullu, m.a. hefur anddyri og geymslu verið bætt við.

Hraunhólar 7, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 00-01, fastanúmer 221-4402 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Hraunhólar 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 221-4402, birt stærð 107.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Hraunhólar 7

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð119,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
84.500.000 kr.707 þ./m²
Byggingarár1981InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2214402Fasteignamat78.700.000 kr.Brunabótamat56.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑