fasteignasölur.is
Njálsgata 19
1 af 30

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og glæsilega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er vel skipulögð með fallegum innréttingum, eikarparketi og svölum með útsýni í átt að Hallgrímskirkju. Húsinu fylgir fallegur bakgarður og staðsetningin er frábær þar sem öll helsta þjónusta, verslanir, veitingastaðir og menningarlíf miðborgarinnar eru í göngufæri.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara auk aðgangs að sameiginlegu þvottahúsi á hverri hæð og hjólageymslu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
 
Nánari lýsing
Forstofa
er opin með góðum fataskáp, eikarparket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á svalir sem snúa í átt að Hallgrímskirkju, eikarparket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með fallegri eikarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, eldhústækjum og tengi fyrir uppþvottavél, eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi er bjart og rúmgott með góðum eikarfataskáp, eikarparket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa og upphengdu salerni, flísar á gólfi og veggjum.

Sameign er björt og snyrtileg með lyftu og sameiginlegu þvottahúsi á hverri hæð. Í kjallara er hjólageymsla og sérgeymsla sem fylgir íbúðinni.

Eignin er staðsett í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, kaffihús, veitingastaði og fjölbreytt menningarlíf. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja njóta þess að búa miðsvæðis með allt það helsta í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.


Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
74.000.000 kr.924 þ./m²
+109,9% á 11 árum
24. ágúst 2015Fyrsta sala
35.250.000 kr.440 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Njálsgata 19

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð80,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
74.000.000 kr.924 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2268032Fasteignamat72.950.000 kr.Brunabótamat46.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑