fasteignasölur.is
Kirkjusandur 5
Opið hús 12. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 46

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna einstaklega fallega 3. herbergja íbúð á 5. hæð með miklu útsýni ásamt stæði í bílageymslu í vönduðu fjölbýlishúsi. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarkjarna, sundlaug, skóla og leikskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir eru meðfram sjónum. Húsvörður er starfandi á svæðinu sem sér um sameign og viðhald á þremur húsum sem standa á lóðinni.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, búr / geymslu, þvottahús á næsta palli fyrir neðan (ekki inni í birtum fm.), geymslu í kjallara ásamt afmarkaðri geymslu í sameign hússins (ekki inni í birtum fm.)

** Eignin er laus við kaupsamning **


Eigninni fylgir hlutdeild í sameign,  sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu í kjallara.  Stærð eignar er 113,3 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla í kjallara 5,6 fm.

Nánari lýsing
Komið er inn í sameign með lyftu og stigagangi, sér forstofa er fyrir framan íbúðirnar á hverri hæð fyrir sig með læstu aðgengi.
Forstofan er parketlögð með fataskáp.
Eldhús er með parketlögðu gólfi, góðri innréttingu, ofni í vinnuhæð og litlu borði sem hægt er að sitja við.
Stofan er parketlögð, björt með stórum gluggum, fallegu útsýni út á sjó og að Hörpunni. Gengið er út á yfirbyggðar svalir með flísum á gólfi út frá stofunni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og góðri innréttingu ásamt snyrtiborði og skápum, upphengdu salerni og sturtu. 
Hjónaherbergið er parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi (2 ) er parketlagt með fataskáp.
Svalirnar eru yfirbyggðar 9 fm. og snúa í suðaustur.
Þvottahús er á næsta stigapalli fyrir hverja hæð fyrir sig eða 3 íbúðir, þar sem hver og einn er með sína þvottavél/þurrkara og er ekki inni í birtum fm.
Geymsla (1) er 5,6 fm. í kjallara með máluðu gólfi.
Geymsla (2) er í sameign hússins og er ekki inni í birtum fm.
Bílastæðið er nr. 40

Á jarðhæð í húsinu er fótaaðgerðarstofa og í húsi númer 1 er æfingasalur með tækjum fyrir hús númer 1,3 og 5 .

Á lóðinni er lítill leikvöllur, lítill púttvöllur og í stuttu göngufæri er t.d. verslunarkjarni við Laugaalæk. Þar má finna kaffihúsið Kaffi lækur , Brauð og co., og fleiri góðar verslanir. Aðeins lengra í hverfinu má finna Laugardalslaug, Worldclass og alla þjónustu við og í kringum Borgartúnið.


Allar nánari upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kirkjusandur 5

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð113,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
102.900.000 kr.908 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2231250Fasteignamat94.250.000 kr.Brunabótamat70.630.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑