fasteignasölur.is
Arnartangi 63
1 af 36

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Fallegt fjögurra herbergja 94,0fm enda raðhús á einni hæð við Arnartanga 63 í Mosfellsbæ. Glæsilegur garður með tveimur garðhúsum, heitum potti og gróðurhúsi. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, búr/geymsla, stofu/borðstofu, sjónvarpsherbergi (var áður svefnherbergi), tvö svefnherbergi, baðherbergi og búr. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á helgi@fstorg.is 


Nánari lýsing: 
Forstofa: Innbyggður fataskápur, parket á gólfi.
Gangur: innbyggðir skápar sem geyma rafmagnstöflu og lagnir. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð, upptekið loft og stórir gluggar. Parket á gólfi. Útgengt út á skjólgóðan pall þar sem búið er að setja skýli yfir hluta af pallinum. Heitur pottur undir skýli.
Eldhús: Með nýrri hvítri háglans innréttingu og borðplötu úr gegnheilum við. Fallegt og bjart með þakglugga og borðkrók. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Með tvöföldum fataskáp og fataskáp með speglahurðum, parket á gólfi. 
Herbergi : Með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi. 
Herbergi: Með harðparketi á gólfi opið inn í stofu, möguleiki að loka aftur.
Baðherbergi: endurnýjað með fallegri lýsingu. Flísalagt í hólf og gólf með ljósum 30x60 flísum. Upphengt WC, innrétting með handlaug, flísalögð sturta með glerþili. Handklæðaofn. Þvottavélainnrétting.
Geymsla: Hillur og flísar á gólfi.
Garður: Stór og góður garður með palli og skýli að hluta fyrir aftan hús. Stórt útihús er í garðinum og minni útihús og geymsluskúr þar við hliðin á. Nýlega var sett upp glæsilegt gróðurhús. Hellulögð verönd er fyrir framan húsið með timburvegg sem heldur við þrjár tunnur, timburpallur er við innganginn.
Annað : Eigninni fylgir bílskúrsréttur. Búið er að gera töluverðar endurbætur á húsinu, búið að skipta um eldhúsinnréttingu og stækka eldhúsið auk þess sem baðherbergi var endurskipulagt og sett þvottaaðstöðu þar inn. Nýlegt parket á flestum rýmum. Þak og hluti af gluggum nýlega yfirfarið. 

Fallegt enda raðhús í grónu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt í þjónustu.

Arnartangi 63

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð94 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
89.900.000 kr.956 þ./m²
Byggingarár1973InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2082735Fasteignamat78.000.000 kr.Brunabótamat49.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑