fasteignasölur.is
Hamraendi 4
1 af 11

Um eignina

Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna glæsilegt iðnaðarbil við Hamraenda 4 í Stykkishólmi, nánar tiltekið eign merkt 01-05, fastanúmer 252-8947 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Um er að ræða vandað og fullbúið bil í nýlegu stálgrindarhúsi sem er klárt og tilbúið til afhendingar. Skráð stærð eignarinnar er 128,9 m², þar af 92,8 m² iðnaðarrými og 36,1 m² milliloft.
Lofthæðin er um 5,2–7 m og innkeyrsluhurðin er um 4 x 4 m. Góð lofthæð og stór hurð gera rýmið hentugt fyrir fjölbreytta starfsemi og geymslu, meðal annars fyrir stærri báta. Gólf eru með epoxy-efni og gólfhita. Útveggir eru klæddir 80 mm yleiningum, en milliveggir og bakveggur eru úr 120 mm yleiningum. Staðsteyptar undirstöður og botnplata eru í húsinu og lagnir hafa verið lagðar fyrir salernisaðstöðu sem býður upp á ýmsa möguleika.
Planið og lóðarsvæðið hafa nýlega verið malbikuð, sem bætir aðgengi að húsinu og gefur eigninni snyrtilegt og vandað yfirbragð.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hamraendi 4

340 Stykkishólmur
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð128,9 m²Herbergi1
35.900.000 kr.279 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2528947Fasteignamat27.900.000 kr.Brunabótamat41.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑