Um eignina
Miklaborg kynnir - TIL LEIGU: Hverfisgata 105, 101 Reykjavík. 110 FM 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með tvennum svölum.
Leiguverð 395 þús á mánuði + rafmagn. Krafist er 2ja mánaða tryggingar ásamt meðmælum. Íbúðin leigist í 1 ár með möguleika á langtímaleigu.
Nýir gluggar og gler í allri íbúðinni þar með talið þakgluggar. MIkil lofthæð og gólfflötur stærri en uppgefnir FM þar sem hluti er undir súð. Lyfta. Sér bílastæði á lóðinni fylgir. Geymsluloft til viðbótar. Parket og flísar á gólfum. Íbúðin er ný máluð. Mikið útsýni.
Nánari lýsing: Tveir inngangar inní húsið. Þegar inn er komið tekur við forstofa, fataskápar. Stór stofa og eldhús saman í opnu rými. Útgengi út á svalir í suður sem snúa að Hverfisgötu. Þrjú svefnherbergi, fataskápur í hjónaherbergi. Útgengt út á svalir í austur. Baðherbergi með hornbaðkari. Þvottahús innan íbúðar. Í heildina góð eign á eftirsóknarverðum stað í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í margvíslega þjónustu. Íbúðin er tilbúin til afhendingar.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf. gustaf@miklaborg.is / 895-7205.
Hverfisgata 105
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























