fasteignasölur.is
Baugakór 24
Opið hús 10. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 40

Um eignina

** Opið hús þriðjudaginn 10. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt, falleg og vel skipulögð 132,2 m2, 4ra herbergja íbúð, í fjórbýlishúsi, með sérinngangi á jarðhæð við Baugakór 24 í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð. Hellulagðar verandir með skjólgirðingu á suðvestur- og norðausturhlið. Búið er að draga rafmagn fyrir rafhleðslustöð á bílastæði fyrir framan húsið.
Frábær staðsetning á eftirsóttum stað í Kórahverfi í Kópavogi. Stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttasvæði HK og falleg útivistarsvæði.


Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: 2026 var þak endurnýjað. 2024 var ný sturta sett upp á baðherbergi með innbyggðum blöndunartækjum. Verönd og skjólgirðing stækkuð norðan megin við húsið. 2023 var skipt um glugga á baðherbergi.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og með fataskápum.
Hol er með parketi á gólfi.
Eldhús er með borðkrók og flísum á gólfi, er opið bæði við hol og stofu að hluta. Fallegar eikarinnréttingar með flísum á milli skápa, steinn á borðum. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á afgirta timburverönd til suðvesturs. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengt á afgirta timburverönd til norðausturs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu með handlaug, "walk-in" sturtu og vegghengdu salerni. Opnanlegur gluggi er í á baðherberginu.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga.
Geymsla er innan íbúðar með hillum og flísum á gólfi. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.

Verð kr. 109.000.000 -



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Baugakór 24

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð132,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
109.900.000 kr.831 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2281346Fasteignamat86.950.000 kr.Brunabótamat71.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑