fasteignasölur.is
Garðatorg 17
1 af 29

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir eignina Garðatorg 17, 210 Garðabær, bjarta og rúmgóða  4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og bílskúr.
Eignin er skráð 131,2 fm, þar af er íbúðin sjálf 104,8 fm og bílskúrin, 26,4 fm. Íbúðin er ætluð 60 ára og eldri. 

Nánari lýsing: 


Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Forstofa, hol, gangur og eldhús eru með nýlögðum, gráum flísum. Gólefnið í stofu hefur einnig verið endurnýjað með niðurlímdu, teak-parketi, 

Þrjú svefnherbergi, parketlögð með ljósu beiki, eru í íbúðinni, þar af tvö sitt hvoru megin við inngang úr forstofu. Rúmgott hjónaherbergið er innar og til hliðar við stofu. Baðherbergið er með ljósum flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu með góðu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél í baðherbergi og þurrkara.

Eldhúsið er með ljósri innréttingu. Uppþvottavél fylgir. Rúmgóður, flíslagður og bjartur borðkrókur er við stóran, útbyggðan glugga.
Stofan er rúmgóð og björt með glugga á tvo vegu. Gengið er út á skjólgóða, suður verönd úr henni, en umhverfis veröndina er snyrtilegur gróinn garður með lítilli grasflöt, blómabeðum og hekki umhverfis.

Bílskúrinn er beint á móti inngangi íbúðarinnar og er hann með fjarstýrðum opnara, hita, rafmagni og vatni. Inn af bílskúr er geymsla með miklu hilluplássi.

Samkvæmt eignaskiptasamningi tilheyrir íbúðinni hlutdeild í samkomusal í húsinu Kirkjulundur 6 & 8 en þessar eignir allar mynda eitt húsfélag.

Hafliði Halldórsson, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, veitir allar nánari upplýsingar í síma 767-5555 eða í gegnum netfangið Haflidi@fstorg.is.
 
Stutt er í alhliða þjónustu í næsta nágrenni þ.m.t. læknamiðstöð, apótek, bókasafn, hárgreiðslustofur, veitingarstaðir og matvöruverslun.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Garðatorg 17

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð131,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
89.000.000 kr.678 þ./m²
Byggingarár1991InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2070153Fasteignamat78.200.000 kr.Brunabótamat55.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑