Um eignina
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik-, grunn- og framhaldsskóla. Íþróttamiðstöð með sundlaug og verslunarkjarni er spölkorn frá.
Íbúð á hæð er 103,6 fm (merkt 01-0101) og bílskúr er 45,6 fm (merkt 02-0101) samtals er eignin skráð 149,8 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er rúmgóð með flotuð gólf, tvöföldu upphengi og handklæðaofn.
Hol er með flotuð gólf.
Stofa er með flotuð gólf og úr stofu er frábært útsýni til sjávar og sveita
Eldhús er með flotað gólf snyrtilegri eyju úr hnotu og helluborði, steinplata á eldhúsinnréttingu, hvítir neðri skápar. Úr eldhúsi er útgengt í gegnum tvöfaldar dyr með gleri á sólpall með miklu óhindruðu útsýni
Svefnherbergin eru þrjú og eru með flotuð gólf í tveimur herbergjum eru skápar.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja í kringum opna walk in sturtu, upphengt wc, opnar hillur, skápar fyrir ofan þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð.
Þvottahús er á baðherbergi og þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skúffum undir fyrir óhreinatau.
Geymsla er á háalofti og opnast í holi fyrir framan baðherbergi.
Bílskúr er með stein á gólfi.
Borgarnes er í tæplega klukkustundar akstri frá höfuðborgarsvæðinu og þar hefur jákvæð uppbygging átt sér stað á undanförnum árum. Mikill fjöldi ferðamanna leggur leið sína í gegnum bæinn sem gefur tækifæri fyrir þá sem eru viðskiptaþenkjandi.
Einnig býður staðsetningin uppá rólegra líf en ys og þys borgarinnar og gæti verið fullkomið tækifæri fyrir þá sem vilja færa sig í rólegri lífstíl að skoða Borgarnes sem mögulegan heimabæ.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Kjartansgata 15
Staðsetning
Allar 52 myndir
Upp ↑


















































