fasteignasölur.is
Lautargata 1
Opið hús 10. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 26

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega nýja íbúð í vönduðu 10 íbúða lyftuhúsi við Lautargötu 1 í Urriðaholtinu í Garðabæ. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna, en votrými eru flísalögð. Einstök staðsetning í jaðri hverfisins, frábært útsýni. Íbúðin afhendist við kaupsamning. 

Íbúð 301 er fjögurra herbergja 89,5 fm íbúð á þriðju hæð (efstu) með svölum. Til viðbótar er ca 5 fm óskráð auka geymsla í sameign.

- Innréttingar eru frá VOKE3 og kvartsteinplata í eldhúsi.
- Vönduð heimilistæki frá AEG.
- Aukin lofthæð
- 10 íbúðir í stigaganginum.


ATH íbúðin skilast fullbúinn án gólfefna en votrými eru flísalögð, en við úrvinnslu mynda var notast við gervigreind til að sýna íbúðina með gólfefnum. 

Nánari lýsing:
Forstofa, gott hol með fataskápum. 
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa útgengt á svalir.
Stofa/eldhús í opnu rými, falleg innrétting frá VOKE3 og vönduð eldunartæki frá AEG. Kvartssteinn á borðum.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum. 
Svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi með fataskáp.
Rúmgott flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og innnréttingu. ,,Walk in'' sturta með innfeldum blöndunartækjum. Gluggi.
þvottaaðastaða á baðherbergi. 
Sér geymsla í sameign, að auki er auka geymsla ca 5 fm sem er ekki skráð í fm tölu eignarinnar.  

Húsið er klætt að utan með álklæðningu.
Gott aðgengi er að íbúðunum, lyfta er í húsinu. 
Sameigninleg hjóla- og vagnageymsla. 
Fallega frágengin lóð.

Nánari upplýsingar veita fasteignaslar hraunhamars og bókið einkaskoðun hjá þeim

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: 
​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár – Hraunhamar.is 
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Lautargata 1

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð89,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
89.900.000 kr.1.004 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2543103Fasteignamat79.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑