1 af 66
Um eignina
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Valsheiði 14 í Hveragerði.
Rúmgott og fallegt sjö herbergja fjölskylduhús með bílskúr, bíósal, líkamsræktaraðstöðu og glæsilegri útiaðstöðu með heitum og köldum potti og sparkvelli. Húsið stendur innarlega í botnlanga, með útivistarsvæði fyrir aftan það og fallegu útsýni.
Skráð stærð skv. FMR er 200,7 m², þar af íbúð 161 m² og bílskúr 39,7 m². Til viðbótar er innréttaður kjallari, merktur lagnakjallari á teikningum, sem er ekki hluti af skráðri stærð hússins. Samkvæmt upplýsingum seljanda eru heildarfermetrar hússins um 400 m².
Aðaleldhús er á efri hæð og aukaeldhús í kjallara. Innangengt er milli hæða og sérinngangur er á neðri hæð.
Frábært fjölskylduhús með aðstöðu til ýmissar afþreyingar.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið er inn í flísalagt anddyri. Þvottahús er á vinstri hönd og þaðan er innangengt í flísalagðan bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og eyju. Ofn er í vinnuhæð, helluborð með háfi og pláss fyrir stóran ísskáp. Flísar eru á gólfi og góð borðaðstaða við eldhúsið. Innfelld lýsing. Útgengi úr eldhúsi útá pallinn og í grillhús.
Stofa: Björt og notaleg stofa með stórum gluggum, parketi á gólfi og arni. Upptekin loft með fallegri lýsingu eru í stofu og þaðan er gengið út á pallinn.
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi eru á aðalhæð. Hjónaherbergi er með baðherbergi með sturtu inn af. Fataskápar eru í hjónaherbergi og tveimur öðrum herbergjum.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi eru á aðalhæð. Aðalbaðherbergið er rúmgott með stórri opinni sturtu og útgengi að pall- og pottaaðstöðu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi og er einnig með sturtu. Baðherbergin eru flísalögð og með vegghengdum salernum.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með hvítri skápainnréttingu, skolvaski, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og góðu geymsluplássi. Flísar eru á gólfi. Útgengt er á bílaplan.
Bílskúr: Innbyggður bílskúr, 39,7 m², með rafdrifnum hurðaopnara og geymslulofti yfir hluta rýmisins.
Neðri hæð / kjallari:
Sérinngangur er á neðri hæð auk innangengis frá aðalhæð. Hæðin er í dag innréttuð með tveimur herbergjum sem nýtt eru sem svefnherbergi, eldhúsi, baðherbergi með sturtu, leikherbergi, bíósal og líkamsræktarherbergi. Gólfhiti og loftræsting.
Bíósalur: Sérútbúið bíóherbergi með skjá og hljóðkerfi, upphækkuðum sætum, teppalögðu gólfi og lýsingu við þrep.
Líkamsræktaraðstaða: Rúmgott líkamsræktarherbergi með speglum. Líkamsræktarbúnaður fylgir kaupum.
Leikherbergi og aukaeldhús: Góð aðstaða til leikja og samveru ásamt aukaeldhúsi. Leikherbergið getur einnig nýst sem borðstofa við eldhúsið.
Garður og útiaðstaða:
Lóðin er 753,6 m². Við húsið er stór pallur með skjólveggjum, heitum potti með appstýringu og köldum potti. Þar er einnig grillskýli, matjurtabeð og körfubolta-/sparkvöllur. Frá pallinum er fallegt útsýni til fjalla.
Framan við húsið er stórt hellulagt og upphitað bílaplan með rafhleðslustöð og plássi fyrir fjóra bíla. Sorp- og hjólaskýli er framan við húsið og steyptur veggur umhverfis lóðina.
Gólfhiti er um allt húsið, gott netkerfi og öryggiskerfi með myndavélum. Rafkerfi hefur verið yfirfarið og ný hleðslustöð sett upp. Tvö baðherbergi hafa verið endurbætt með opnum sturtum og framgarður tekinn í gegn af garðyrkjumeistara.
Eignin er laus til afhendingar strax. Sala með húsgögnum og öðrum búnaði er samkomulagsatriði; líkamsræktarbúnaður er innifalinn.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valsheiði 14
810 Hveragerði
TegundEinbýlishúsStærð200,7 m²Herbergi8Svefnherb.6Baðherb.3
169.900.000 kr.847 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2284143Fasteignamat115.650.000 kr.Brunabótamat112.400.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 66 myndir
Upp ↑