fasteignasölur.is
Lækjasmári 56
1 af 60

Um eignina

Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og rúmgóða 4ra herbergja endaíbúð á tveimur hæðum með sérinngangi, suðvestursvölum og stæði í upphitaðri bílageymslu við Lækjasmára 56 í Kópavogi. Um er að ræða vel skipulagða eign á góðum stað í lokuðum botnlanga í Smárahverfi. Á neðri hæð er forstofa, hol, eldhús, sérþvottahús, gestasalerni og samliggjandi stofa og borðstofa með útgengi á suðvestursvalir. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi (áður þrjú) og baðherbergi. Auðvelt er að breyta aftur í þrjú svefnherbergi. Yfir íbúðinni er óinnréttað geymsluris með nýtingarmöguleikum. Sérgeymsla er staðsett í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu. Eigninni fylgir stæði í upphitaðri bílageymslu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós, Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - ** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR **

Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá HMS er 128,4 m², þar af er íbúðin 109,3 m², sérgeymsla 7,1 m² og stæði í bílageymslu 12,0 m². Efri hæð er að hluta undir súð, nýtanlegir fermetrar eru því fleiri en skráðir fermetrar gefa til kynna.

Vel staðsett eign á fjölskylduvænum stað í Smárahverfi. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, meðal annars Smáratorg og Smáralind. Leik- og grunnskólar eru í nágrenninu, auk íþróttaaðstöðu Breiðabliks og fjölbreyttra útivistarmöguleika í Kópavogsdal. Gott aðgengi er að almenningssamgöngum og stofnbrautum.

Nánari lýsing eignar
Neðri hæð:
Anddyri/forstofa, komið er inn um sérinngang af 2. hæð með fatahengi og flísum á gólfi.
Hol er opið og tengir saman rými neðri hæðar og þaðan er stigi upp á efri hæð.
Eldhús er opið við hol með parketi á gólfi. Rúmgóð innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og gert ráð fyrir uppvþottavél í innréttingu.
Þvottaherbergi inn af eldhúsi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt góðu hilluplássi. Dúkur á gólfi.
Gestasalerni með innréttingu við vask og salerni. Dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi. Útgengt frá stofu á suðvestursvalir.

Efri hæð:
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II og III eru nýtt sem eitt stórt herbergi í dag, en auðvelt er að breyta aftur í tvö herbergi með léttum millivegg, en báðar hurðir eru til staðar.
Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, upphengdu salerni og baðinnréttingu.
Geymsluris er yfir íbúðinni sem er óinnréttað. Fordæmi eru fyrir því í sambærilegum eignum í nágrenni að risrými hafi verið innréttað með þakglugga og nýtt sem aukarými. 
Sérgeymsla, 7,1 m² að stærð tilheyrir eigninni og er staðsett í kjallara inn af sameignargangi.
Sameign með sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði sem tilheyrir eigninni er staðsett í upphitaðri og lokaðri bílageymslu. Bílastæðið er skráð inn í birtum fermetrum (12,0 m²)

** VERTU TILBÚIN ÞEGAR DRAUMAEIGNIN KEMUR Í SÖLU - FÁÐU FRÍTT VERÐMAT HÉR **

Húsið og staðsetning
Húsið er byggt árið 1997 og er svokallað Permaform-einingahús með viðhaldslítilli klæðningu. Sér geymslur eru í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu. Eignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfi í Kópavogi. Stutt er í leikskólann Læk og Smáraskóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu í Smáralind og á Smáratorgi. Íþróttasvæði Breiðabliks og Sporthúsið eru einnig í göngufæri.

Viðhald og endurbætur að sögn seljanda
- Parket endurnýjað á báðum hæðum árin 2022 og 2024.
- Skipt um sturtutæki á baðherbergi árið 2025.
- Stigi milli hæða var gerður upp c.a. 2019
- Þak endurnýjað að hluta haustið 2017.
- Tréverk hússins málað reglulega, að jafnaði annað hvert ár.

Björt og rúmgóð 4ra herbergja endaíbúð á tveimur hæðum með sérinngangi, suðvestursvölum og stæði í upphitaðri bílageymslu á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfi. 

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
97.900.000 kr.762 þ./m²
+95,8% á 9 árum
27. október 2017Þinglýstur kaupsamningur
50.000.000 kr.389 þ./m²
+78,6% á 11 árum
17. apríl 2007Fyrsta sala
28.000.000 kr.218 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lækjasmári 56

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð128,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
97.900.000 kr.762 þ./m²
Byggingarár1997InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2230030Fasteignamat87.050.000 kr.Brunabótamat64.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 60 myndir

Upp ↑