fasteignasölur.is
Austurströnd 2
Opið hús 11. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 26

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulagða og fallega 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð, auk stæðis í bílageymslu, við Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi.

* Mjög fallegt útsýni
* Stæði í bílageymslu
* Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug og alla þjónustu
* Vel skipulögð íbúð

Allar nánari upplýsingar um eigna veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu inga@palssonfasteignasala.is
ww.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Íbúðin er skráð 110 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands og þar af er bílageymsla 


Forstofa með skáp og parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð með fallegu útsýni til sjávar og útgengni á 16,0 fermetra svalir til norðurs þaðan sem nýtur mjög fallegs útsýnis út á sjóinn, að Esjunni. Parket á gólfi.
Eldhúsið er í björtu rými með stofunni, gott skápapláss og parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum, útgengni út á lóðina og parket á gólfi.
Barnaherbergi er bjart með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari,nýlegu sturtugleri og flísum í hólf og gólf.
Geymsla/þvottahús er innan íbúðarinnar.
Nýtt teppi á alla stigagangana  2025.

Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni, lakkað gólf og nýjar sameiginlegar vélar. 
Einnig er á sömu hæð rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.
Merkt stæði í bílageymslu við Austurströnd 2-4.

Húsið hefur fengið eftirfarandi viðhald á undanförnum árum, skv. upplýsingum frá húsfélagi:
Utanhússframkvæmdir árið 2019, þar sem skipt var um járn á þaki, sprungu- og steypuviðgerðir, útskipti á hluta glugga ásamt heilmálun á húsinu.
Sumarið 2023 var farið í endurbætur á tröppum og hitalögnum í þeim, auk endurnýjunar á dreni að vestanverðu.

Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, Eiðistorg og sundlaug Seltjarnarness.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
74.900.000 kr.681 þ./m²
+23,0% á 3 árum
8. júlí 2023Þinglýstur kaupsamningur
60.900.000 kr.554 þ./m²
+38,4% á 3 árum
4. desember 2020Fyrsta sala
44.000.000 kr.400 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Austurströnd 2

170 Seltjarnarnes
TegundFjölbýlishúsStærð110 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
74.900.000 kr.681 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2066836Fasteignamat69.400.000 kr.Brunabótamat50.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑