fasteignasölur.is
Sundlaugavegur 20
1 af 27

Um eignina

Vilborg G Hansen lgf og FASTEIGNASALAN BÆR kynnir:  5 herbergja íbúð í kjallara í Laugardalnum. Stutt í skóla, leikskóla, sund og íþróttir.  

Nánari upplýsingar hjá Vilborgu G. Hansen lgf sími 895-0303 eða á vilborg@fasteignasalan.is

ÍBÚÐ: Gengið er niður nokkrar tröppur í íbúðina.  Komið inn í forstofuhol með flísum, en þaðan er gengið inn í sameiginlegt þvottahús með einni annarri íbúð.  Af gangi í íbúð er gengið inn í baðherbergi með baðkari m/sturtuhengi, skúffum undir vaski, handklæðaofni og upphengdu salerni.  Gluggi er á baðherbergi. Hjónaherbergi, með skápum og tvö barnaherbergi ásamt geymslu íbúðar.  Eldhús með ljósri innréttingu, borðstofa og stofa eru í opnu björtu rými en þaðan er gengið inn í fjórða herbergið. Mixuð gólfefni eru í íbúðinni.  Litla herbergið sem er innaf hjónaherbergi getur einnig nýst sem fataherbergi.  

Framkvæmdir í sameign:
2026: Hafnar viðgerðir á steyptum kanti á lóðamörkum við gangstétt fyrir framan húsið. Nýr kantur hefur verið steyptur en múrvinnu er ólokið og áætlað er að henni ljúki sumarið 2027.
2026: Sólpallur smíðaður á baklóð
2024-2025: Nýr stofugluggi í íbúð í kjallara.
2024-2025: Skipt um stofuglugga í íbúð á fyrstu hæð.
2024: Múr- og tröppuviðgerðir á tröppum við kjallarainngang á vesturhlið hússins.
2022–2024: Lagnir myndaðar nokkrum sinnum (janúar 2022, maí 2023, nóvember 2023 og júní 2024).
Sumar 2022: Þak og timburverk málað, allir gluggar skafnir og málaðir.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Bær
82.900.000 kr.756 þ./m²
+167,4% á 12 árum
29. júlí 2014Fyrsta sala
31.000.000 kr.283 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sundlaugavegur 20

105 Reykjavík · Austurbær
TegundHæðStærð109,7 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
82.900.000 kr.756 þ./m²
Byggingarár1957InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2018879Fasteignamat79.650.000 kr.Brunabótamat54.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑