1 af 18
Um eignina
Breiðhella 3 – Bil merkt 0104
Um er að ræða afar snyrtilegt og vel staðsett bil sem mikið hefur verið lagt í. Búið er að útbúa milliloft yfir nánast allan grunnflöt bilsins, sem býður upp á þann möguleika að skipta húsnæðinu í tvær aðskildar einingar eða nýta það í heild sinni.
Á húsnæðinu eru bæði inngönguhurð og innkeyrsluhurð, auk annarrar gönguhurðar sem er staðsett á bakhlið hússins.
Heildarstærð húsnæðisins, að millilofti meðtöldu, er u.þ.b 108 fm, en skráður grunnflötur samkvæmt Fasteignaskrá er 58,5 fm.
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Bjartur og rúmgóður salur með góðum gluggum sem veita fallega náttúrulega birtu. Salerni með snyrtilegri vaskinnréttingu og upphengdu salerni. Úr salnum er gengið inn á gang þar sem snyrtilegur, teppalagður stigi tengir saman neðri hæðina og milliloftið.
Milliloft: Þegar komið er upp á milliloftið tekur við forstofa og þaðan er gengið inn í rúmgott og vel útbúið rými. Þar hefur verið komið fyrir loftaplötum og fallegri lýsingu. Á milliloftinu er einnig eldhúsaðstaða og flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu.
Búið er að setja upp sérstaka rafmagnstöflu fyrir efri hæðina.
Afar snyrtilegt og vel nýtt húsnæði sem býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og getur hentað vel fyrir ýmiss konar starfsemi eða einstaklinga sem leita að vel útbúnu og fjölhæfu rými.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Allar 18 myndir
Upp ↑