fasteignasölur.is
Garðsstaðir 5
1 af 32

Um eignina

RE/MAX og Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna:
Vel staðsett, bjart og fjölskylduvænt 4ra herbergja raðhús á einni hæð, samtals 178,4 fm, þar af 43,9 fm bílskúr. Eignin er á eftirsóttum stað í Reykjavík, í göngufæri við golfvöll Golfklúbbs Reykjavíkur að Korpúlfsstöðum, stutt í íþróttamiðstöð í Egilshöll og verslun og þjónustu í Spönginni. 
Bjart og fallegt fjölskylduhús sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 694-2526 eða á netfanginu bjarny@remax.is.


SMELLTU HÉR og skoðaðu eignina í þrívídd (3D)

Skipulag eignarinnar, Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr. Í bílskúr eru einnig þvottahús og gestasalerni.

Nánari lýsing:
Forstofa
: Rúmgóð forstofa með fataskápum og vínylparket á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa sem er samtengd borðstofu og eldhúsi í einu rúmgóðu alrými. Vínylparket á gólfi.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ofni í vinnuhæð. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Vínylparket á gólfi. Geymsluloft yfir hjónaherbergi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með vínylparket á gólfi.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með vínylparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, baðkari, upphengdu salerni og góðri innréttingu með speglaskáp. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Þvottaaðstaða er í bílskúr.
Gestasalerni: Auka gestasalerni er í bílskúr.
Milliloft í hálfri hæð (1.7m) yfir hluta stofu og baðherbergis (12fm)
Bílskúr: Rúmgóður, 43,9 fm bílskúr með rafdrifnum hurðaopnara og flísum á gólfi. Geymsluloft yfir bílskúr.
Tvö geymsluloft og eitt milliloft eru í eigninni. Gólfhiti í bílskúr.

Fasteignamat árið 2027 verður 142.300.000

Framkvæmdasaga samkvæmt eiganda: 
Nýtt gólfefni var lagt á íbúð og innréttingar á baði endurnýjaðar árið 2021, flestir gluggar á suðurhlið endurnýjaðir 2022, skipt um allar hurðar og þak málað 2025 og eldhús og tæki endurnýjuð 2026.

Nánari upplýsingar:
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími: 694-2526
Netfang: bjarny@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Við fyrstu kaup er stimpilgjaldið 0,4%.
Stimpilgjald af kaupsamningi er 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. er 2.500 kr. fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrár viðkomandi lánastofnana.
Umsýslugjald til fasteignasölu er 69.900 kr. með virðisaukaskatti.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX hvetur því væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir gerð kauptilboðs og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun eftir þörfum.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
142.900.000 kr.801 þ./m²
+66,2% á 5 árum
16. júní 2021Fyrsta sala
86.000.000 kr.482 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Garðsstaðir 5

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundRað-/parhúsStærð178,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
142.900.000 kr.801 þ./m²
Byggingarár1999InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2239272Fasteignamat133.700.000 kr.Brunabótamat107.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑