fasteignasölur.is
Eyrartröð 4
1 af 78

Um eignina

Eyrartröð 4, Hafnarfirði.

Um er að ræða vel staðsett atvinnuhúsnæði á frábærum stað í Hafnarfirði. Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og mikið verið lagt í húsnæðið. Samkvæmt fasteignamati er eignin skráð 1.211,9 fm að stærð og skiptist í fjölbreytt rými, þar á meðal sali, skrifstofur, starfsmannaaðstöðu, búningsklefa með salernum og sturtum, matsal auk fundarherbergja.
Hér er um að ræða afar fjölhæfa eign sem getur hentað undir margvíslega starfsemi, hvort sem um er að ræða eitt stærra fyrirtæki eða fleiri rekstraraðila undir sama þaki. Um spennandi fjárfestingar- og rekstrarkost er að ræða sem vert er að skoða nánar. Ath húsið er stærra en fermetrar segja til um.


Skipulag eignarinnar:
Góð bílastæði eru fyrir framan, aftan við og við hlið hússins. Auk þess fylgir bílageymsla undir hluta eignarinnar. Þegar komið er inn um aðalinngang á framhlið hússins tekur á móti gestum rúmgóður gangur. Þaðan er gengið inn í skrifstofuhluta eignarinnar sem samanstendur af skrifstofum, fundarherbergjum, salerni og annarri nauðsynlegri aðstöðu. Hringstigi tengir hæðir saman og á efri hæð eru fleiri skrifstofur ásamt eldhúsaðstöðu.
Frá skrifstofurýminu er gengið inn í stóran og bjartan sal með innkeyrsluhurð og góðri lofthæð. Stórir gluggar veita rýminu mikið dagsljós. Inn af þeim sal er annar rúmgóður salur sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Þaðan liggur leið inn á gang þar sem finna má stóran matsal og glæsilegan fundarsal. Fundarsalurinn er útbúinn Bose-hljóðkerfi í loftum og nýtur einstaks útsýnis. Frá bæði matsal og fundarsal er útgengt á rúmgóðar svalir.
Stigi tengir síðan saman efri og neðri hluta eignarinnar. Á neðri hæðum eru búningsklefar með salernum og sturtum auk þriggja stórra sala. Þar er góð aðkoma og mögulegt að nýta salina sem sjálfstæð rými eða fyrir samræmda starfsemi eftir þörfum. Eignin býður upp á fjölmarga nýtingarmöguleika og hentar vel fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.

Nánari upplýsingar um skipulag og rýmaskipan má sjá á meðfylgjandi teikningum í auglýsingunni.
 

Eyrartröð 4

220 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1211,9 m²Herbergi10
Tilboð
Byggingarár1965FasteignanúmerF2074567Fasteignamat216.400.000 kr.Brunabótamat285.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 78 myndir

Upp ↑